Kröfur sem Tryggingastofnun ríkisins hefur innt af höndum umfram rétt
IMST sér um innheimtu á endurkröfum Tryggingastofnunar ríkisins (TR) vegna greiðslna sem inntar hafa verið af hendi umfram rétt samkvæmt lögum um almannatryggingar nr. 100/2007 og lögum um félagslega aðstoð nr. 99/2007.
Almennt innheimtuferli
Við innheimtu IMST koma til eftirgreind úrræði til að knýja á um greiðslur
- Innheimtubréf/greiðsluáskorun – samningar
- Skuldajöfnuður
- Fjárnám
- Nauðungarsala
Greiðsludreifing
Beiðni um greiðsludreifingu þarf að berast skriflega á netfangið innheimta@syslumenn.is eða með bréfi til embættisins.
Vakin er athygli á að hægt er að greiða kröfu á bankareikning 0159-26-267, kennitala 660914-0990. Tilgreina þarf kennitölu og nafn skuldara við greiðslu í banka.
Þá er einnig hægt er að greiða með greiðslukorti og gera boðgreiðslusamning.
Nánari upplýsingar, m.a. um tilurð ofgreiðslna, má finna á vef Tryggingarstofnunar ríkisins, www.tr.is