Velkomin á vefsvæði sýslumanna. Hjá sýslumönnum nálgast þú ýmsa þjónustu ríkisins, ýmist rafrænt eða með komu á eina af mörgum skrifstofum sýslumanna víða um land. Sýslumenn annast umsóknir um vegabréf og ökuskírteini, innheimta skatta og önnur gjöld, sinna fjölskyldumálum og almannatryggingum og ýmsum opinberum skráningum svo sem þinglýsingum og fleiru.
Andlát og dánarbú
Andlátstilkynning, dreifing ösku, erfðaskrár, erfðafjárskýrsla, fyrirframgreiddur arfur, skipting dánarbús og fleira.
Fjölskyldumál
Forsjármál, umgengni, lögheimili, utanlandsferðir barna, faðernismál og sáttameðferðir, sambúð og skilnaður. Meðlag, sérstök framlög með barni, framlag vegna menntunar eða starfsþjálfuna og fleira.
Hjónaband
Réttindi í hjónabandi, kaupmálar og giftingar erlendis
Skírteini og vottorð
Vegabréf, ökuskírteini, P-kort, sakavottorð, veðbókavottorð og skuldleysisvottorð.
Leyfi og löggildingar
Rekstrarleyfi gististaða og veitingastaða, heimagisting, skemmtanaleyfi, happdrættisleyfi, brennuleyfi og ýmis starfsleyfi. Löggilding fasteigna- og skipasala, skjalaþýðenda og dómtúlka, málflutningsréttindi lögmanna, upplýsingar fyrir iðnnema og ökukennara.
Allar þjónustur
Aðrar þjónustur sýslumanna, t.d þinglýsingar, lögráðamál, innheimta, ættleiðingar og fullnustugerðir.
Fréttir og tilkynningar
Skrifstofa Sýslumannsins á Vestfjöðum á Patreksfirði lokuð 11. og 12. apríl
Skrifstofa embættisins á Patreksfirði verður lokuð fimmtudaginn 11. og föstudaginn 12. apríl nema fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninga í sameinuðu sveitarfélagi Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar.
Ökuskírteini sem töfðust í framleiðslu eru komin
Skírteinin verða tilbúin til afhendingar mánudaginn 8. apríl í afgreiðslum sýslumanna