Útburður
Heimild 1. mgr. 4. gr. laga um aukatekjur ríkissjóð . . . . . .
4. gr.
Þegar beiðni um fjárnám er afhent sýslumanni skal um leið greiða í
ríkissjóð 1% þeirrar fjárhæðar sem fjárnáms er krafist fyrir, að meðtöldum
vöxtum og kostnaði, þó aldrei minna en [8.000 kr.] 1) eða meira en [25.000 kr.] 1) Gjald skal reiknað í heilum hundruðum króna
þannig að það sem er umfram fellur niður. Ef fjárnáms er krafist hjá fleiri en
einum gerðarþola í sömu beiðni skal greiða þetta gjald vegna hvers þeirra.
Þegar beiðni um kyrrsetningu eða löggeymslu er afhent sýslumanni
skal um leið greiða gjald skv. 1. mgr. sem tekur mið af fjárhæðinni sem gerðar
er krafist fyrir.
Við lögbannsgerð eða aðfarargerð til fullnustu á öðru en skyldu
til peningagreiðslu skal greiða [12.000 kr.] 1) í ríkissjóð um leið og beiðni um gerðina er
afhent sýslumanni.