Stjórnvaldssektir, févíti, dagssektir, sáttir og eftirlitsgjald Fjármálaeftirlitsins
IMST sér um innheimtu á eftirfarandi kröfum Fjármálaeftirlitsins:
- Dagsektum og févíti.
- Stjórnvaldssektum sem Fjármálaeftirlitið leggur á einstaklinga og lögaðila.
- Sáttarboðum og sáttargerðum sem Fjármálaeftirlitinu er heimilt að gera.
- Eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins sem leggst á eftirlitsskylda aðila skv. lögum nr. 99/1999.
Almennt innheimtuferli
Við innheimtu IMST koma til eftirgreind úrræði til að knýja á um greiðslur
- Innheimtubréf/greiðsluáskorun – samningar
- Skuldajöfnuður
- Fjárnám
- Nauðungarsala
Greiðsludreifing
Beiðni um greiðsludreifingu þarf að berast skriflega á netfangið innheimta@syslumenn.is eða með bréfi til embættisins.
Vakin er athygli á að hægt er að greiða kröfu á bankareikning 0159-26-267, kennitala 660914-0990. Tilgreina þarf kennitölu og nafn skuldara við greiðslu í banka.
Þá er einnig hægt er að greiða með greiðslukorti og gera boðgreiðslusamning.
Nánari upplýsingar má finna á vef Fjármálaeftirlitsins, www.fme.is