Vanskilaskrá

Hvað er vanskilaskrá?

Vanskilaskrá inniheldur upplýsingar um vanskil einstaklinga og lögaðila/fyrirtæki. Í vanskilaskrá eru m.a. upplýsingar um innheimtuaðgerðir sem eiga sér stað eða eru yfirvofandi og komið hafa til kasta sýslumannsembætta eða héraðsdómstóla.

Einn aðili hérlendis, Lánstraust hf., sem heyrir undir fyrirtækið Creditinfo Island heldur opinbera vanskilaskrá.  

Skráin er uppfærð jafnóðum og upplýsingar berast Creditinfo Ísland, hvort heldur sem um er að ræða skráningu eða afskráningu.
 

Hvað þarf til að upplýsingar séu færðar úr vanskilaskrá?

a. Fjögur ár liðin frá því að fjárnám / nauðungarsala eða önnur samsvarandi gerð fór fram

b. Upplýsingar berast um uppgjör kröfu að baki skráningu.

 

Starfsleyfi Persónuverndar til Lánstrausts hf. má nálgst  hér á vef Persónuverndar, www.personuvernd.is .   

Upplýsingar um Creditinfo Island og vinnslu og meðferð upplýsinga um vanskil má nálgast á vef félagsins, www.creditinfo.is eða www.lanstraust.is.  

 



Merki Sýslumanna

Útlit síðu: