Skipulag lögreglu
Ríkið heldur uppi starfsemi lögreglunnar í landinu, sbr. 1. gr. lögreglulaga nr. 90/1996.
Hlutverk lögreglu er tilgreint í 2. mgr. 1. gr. lögreglulaga.
Landið skiptist í 15 lögregluumdæmi sem fylgja stjórnsýsluumdæmum sýslumanna með eftirfarandi undantekningum, sbr. 3. gr. laga nr. 92/1989 um framkvæmdarvald ríkisins í héraði.:
Á höfðuborgarsvæðinu, þ.e. í umdæmum sýslumannanna í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði fer lögreglustjóri höfðuborgarsvæðisins með lögreglustjórn.
Á Suðurnesjum, þ.e. í umdæm i sýslumannsins í Keflavík (Reykjanesbæ), fer lögreglustjórinn á Suðurnesjum með lögregslustjórn.
Í umdæmi sýslumannsins í Búðardal fer sýslumaðurinn í Borgarnesi með lögreglustjórn.
Í umdæmi sýslumannanna á Patreksfirði, Bolungarvík og Hólmavík fer sýslumaðurinn á Ísafirði með lögreglustjórn og nefnist þá lögreglustjórinn á Vestfjörðum.
Í umdæmi sýslumannsins á Siglufirði fer sýslumaðurinn á Akureyri með með lögreglustjórn.
Í umæmi sýslumannsins á Höfn fer sýslumaðurinn á Eskifirði með lögreglustjórn.
Í umdæmi sýslumannsins í Vík fer sýslumaðurinn á Hvolsvelli með lögreglustjórn.
Dómsmálaráðherra er æðsti yfirmaður lögreglunnar en ríkislögreglustjóri fer með málefni lögreglunnar í umboði hans, sbr. 4. gr. lögreglulaga. Verkefni ríkislögreglustjóra eru tilgreind í 5. gr. lögreglulaga.
Lögreglustjórar fara með stjórn lögreglu, hver í sínu lögregluumdæmi. Þeir annast daglega stjórn og rekstur lögreglunnar í umdæmi sínu og bera ábyrgð á framkvæmd lögreglustarfa innan þess sbr. 2. mgr. 6. gr. lögreglulaga. Auk þess er þeim falin ýmis önnur verkefni í lögum svo sem yfirstjórn leitar- og björgunarmála á landi, sbr. 3. mgr. 6. gr. lögreglulaga. Þeir fara einnig með stjórn almannavarna sbr. lög um almannavarnir nr. 94/1962
Frekari upplýsingar um skipulag og starfsemi lögreglunnar á landinu má nálgast á vef lögreglunnar, www.logreglan.is
Helstu lög og reglugerðir á þessu sviði:
Lög um meðferð sakamála nr. 88/2008
Lög um almannavarnir nr. 82/2008
Uppfært 22.01.2009


