Tækifærisleyfi og tímabundin áfengisveitingaleyfi
Almennt um tækifærisleyfi og tímabundin áfengisveitingaleyfi
Um tækifærisleyfi til skemmtanahalds og tímabundin áfengisveitingaleyfi er fjallað í 17. og 18. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 27. til 33. gr. reglugerðar nr. 587/2007 um sama efni.
Með tækifærisleyfi er átt við leyfi til að standa fyrir einstökum samkomum eða skemmtunum svo sem skóladansleikjum, tónleikahaldi, almennum dansleikjum, útihátíðum og öðrum svipuðum samkomum sem fram fara á stöðum sem ekki hafa rekstrarleyfi skv. lögum um veitinga- og gististaði og eru til þess fallnir að valda ónæði, svo sem vegna hávaða, og kalla á eftirlit og/eða löggæslu. Að jafnaði er miðað við að ekki þurfi að sækja um tækifærisleyfi nema seldur sé aðgangur að þeirri skemmtun eða samkomu sem um ræðir.
Með tímabundnu áfengisveitingaleyfi er átt við leyfi sem afla þarf til sölu og/eða afhendingar áfengis við einstök tækifæri í atvinnuskyni hvort sem um beina sölu eða hvers kyns afhendingu áfengisins er að ræða, svo sem í kynningarskyni, á sýningum eða sem lið í samkomu- og/eða ráðstefnuhaldi, hvort sem er innan dyra, úti undir berum himni eða í tjaldi. Tímabundin áfengisveitingaleyfi verða eingöngu gefin út þegar atburður fer fram á stað sem ekki hefur rekstrarleyfi en þó almennt ekki oftar en tólf sinnum ár hvert vegna sama staðar.
Ekki þarf að sækja um tækifærisleyfi né leyfi til áfengisveitinga í einkasamkvæmum, en með einkasamkvæmum er í þessu sambandi átt við lokaðar samkomur fyrir afmarkaðan hóp manna þar sem eftir atvikum er veitt áfengi án endurgjalds og án þess að það sé í kynningar- eða söluskyni.
Hvað þarf að koma fram í umsókn um tækifærisleyfi eða tímabundið áfengisveitingaleyfi
Í umsókn um tækifærisleyfi eða tímabundið áfengsveitingaleyfi skal gerð grein fyrir hvers konar samkomu sótt er um skv. ofanrituðu.
Þá skal jafnframt gera grein fyrir eftirfarandi:
- Staðsetningu skemmtunar eða atburðar.
- Áætluðum fjölda gesta.
- Lengd skemmtunar eða atburðar.
- Aldursdreifingu gesta sem líklegt er að sæki skemmtunina eða atburðinn.
- Dagskrá skemmtunar eða atburðar ef hún liggur fyrir.
Skilyrði sem umsækjandi um tækifærisleyfi / tímabundið áfengisveitingaleyfi þarf að uppfylla
Umsækjandi og/eða forsvarsmaður umsækjanda ef umsækjandi er lögaðili skal uppfylla sömu skilyrði og umsækjandi um rekstrarleyfi eftir því sem við á. Leyfisveitanda er þó heimilt að víkja frá fjárræðisskilyrði þegar sótt er um tækifærisleyfi í því tilviki að umsækjandi hafi ekki náð tilskildum aldri enda verði tilnefndur ábyrgðarmaður að skemmtun eða atburði sem uppfyllir skilyrðið.
Umsóknarfrestur
Leyfi til skemmtunar eða atburða sem ekki er ætlað er að standa lengur en í sólarhring skal sækja um með viku fyrirvara.
Leyfi til skemmtunar eða atburðar sem ætlað er að standa lengur en sólarhring skal sækja um með minnst 30 daga fyrirvara.
Sé skemmtun eða atburður sérstaklega umfangsmikil, s.s. gert ráð fyrir u.þ.b. 3.000 manns og kalli á mikinn undirbúning skal sækja um leyfi með minnst þriggja mánaða fyrirvara.
Eyðblað
Sækja skal um tækifærisleyfi eða leyfi til tímabundinna áfengisveitinga á sérstöku eyðublaði sem nálgast má hér.
Gjald
Samkvæmt lögum um aukatekjur ríkissjóðs nr. 88/1991 skal greiða sem hér segir fyrir neðangreind leyfi:
Fyrir tækifærisleyfi til skemmtanahalds, sjá hér hér
Fyrir tímabundið áfengisveitingaleyfi, sjá hér
Ef sótt er um tækifærisleyfi til skemmtanahalds þar sem jafnframt verða áfengisveitingar þarf að sækju um og greiða fyrir hvort tveggja.
Sérstök ákvæði
Vakin skal athygli á því að umsækjendur um tækifærisleyfi skulu sækja um leyfi til flutnings tónlistar áður en hún er flutt á skemmtunum. Slíkt leyfi veitir Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar (STEF) og vísast um það á vef samtakanna www.stef.is Gjaldskrá fyrir einstaka leyfi má nálgast á vef Stefs hér.
Uppfært 23.06.2010.


