Sprengiefni
Lögreglustjórar gefa út nokkur leyfi er varða sprengiefni og meðferð þess en í öðrum tilvikum gefur ríkislögreglustjóri út leyfi. Framleiðsla, innflutningur, sala og heildsala sprengiefnis er almennt óheimil nema að fengnu leyfi ríkislögreglustjóra.
Leyfi til kaupa á sprengiefniSprengiefni má aðeins selja þeim sem fengið hefur leyfi lögreglustjóra til að kaupa það og hafa það í sinni vörslu. Sækja skal um leyfi til kaupa á sprengiefni til lögreglustjóra í viðkomandi umdæmi.
Sé kaupandi lögaðili skal tilnefna sérstakan ábyrgðarmann sem hefur umsjón með vörslu sprengiefnisins. Umsókn skal fylgja yfirlýsing viðkomandi einstaklings um að hann taki að sér hlutverk ábyrgðarmanns, ásamt staðfestingu forráðamanns fyrirtækis. Hlutverk ábyrgðarmanns er m.a. að tryggja að flutningur, geymsla og birgðaskráning sprengiefna sé í samræmi við ákvæði reglugerðar um sprengiefni nr. 684/1999.
Sá sem hefur leyfi til kaupa á sprengiefni skal búa yfir fullnægjandi geymslu samkvæmt ákvæðum VI. kafla reglugerðar nr. 684/1999.
Sá sem fengið hefur útgefið leyfi til kaupa á sprengiefni hefur jafnframt rétt til flutnings á efninu í samræmi við ákvæði 9. gr. tilskipunar 93/15/EBE, enda séu aðeins 50 kg. af sprengiefni flutt í einu og leyfishafi annist sjálfur flutninginn.
Leyfi til flutnings á sprengiefni
Við flutning sprengiefnis skal gæta ákvæða VII. kafla reglugerðar nr. 684/1999 um sprengiefni og reglugerðar nr. 984/2000 um flutning á hættulegum farmi. Óheimilt er að flytja meir en 50 kg. af sprengiefni, að undanskildum umbúðum, með sama ökutæki nema að fengnu leyfi lögreglustjóra á áfangastað.
Sá sem hefur fengið útgefið leyfi til kaupa á sprengiefni hefur jafnframt rétt til flutnings á efninu, enda séu aðeins 50 kg. af sprengiefni flutt í einu og leyfishafi annist sjálfur flutninginn.
Leyfi til að koma fyrir færanlegri sprengiefnageymslu
Óheimilt er að koma fyrir færanlegri sprengiefnageymslu án leyfis lögreglustjóra í viðkomandi umdæmi. Færanlegar sprengiefnageymslur skulu vera viðurkenndar af Vinnueftirliti ríkisins samkvæmt nánari reglum sem stofnunin setur.
Sprengiefnaleyfi - Sprengistjóri
Enginn má fara með sprengiefni og annast sprengivinnu nema með leyfi lögreglustjóra samkvæmt 1. mgr. 27. gr. vopnalaga. Umsókn um sprengiefnaleyfi skal beina til lögreglustjóra í því umdæmi sem umsækjandi á lögheimili. Sá er fengið hefur leyfi lögreglustjóra til að fara með sprengiefni og annast sprengivinnu kallast sprengistjóri.
Þeim einum má veita sprengiefnaleyfi sem framvísar vottorði Vinnueftirlits ríkisisins um að hann hafi næga kunnáttu til að annast sprengivinnu. Skilyrði fyrir útgáfu vottorðs Vinnueftirlitsins eru:
- Umsækjandi hafi náð 20 ára aldri.
- Umsækjandi hafi sótt námskeið sem Vinnueftirlit ríkisins viðurkennir og staðist próf.
- Umsækjandi hafi staðist verklegt próf, sem prófdómari Vinnueftirlits ríkisins leggur fyrir.
Sprengiefnaleyfi eru gefin út til 5 ára í senn. Við endurnýjun réttinda skal umsækjandi skila vottorði Vinnueftirlits um hæfi sitt og staðfestingu þess að hann hafi stundað sprengivinnu sl. 5 ár. Að öðrum kosti skal umsækjandi gangast að nýju undir próf Vinnueftirlits ríkisins.
Sprengistjóri ber ábyrgð á að sprengivinna sé framkvæmd á öruggan hátt, svo og að meðferð og notkun sprengiefnis og búnaðar, sem notaður er, sé í samræmi við gildandi reglur, leiðbeiningar framleiðanda og fyrirmæli eftirlitsmanna. Sprengistjóri skal ávallt bera leyfisskírteini á sér við sprengivinnu og framvísa því þegar lögregla eða starfsmenn Vinnueftirlits ríkisins krefjast þess.
Umsóknareyðublöð:
Umsóknareyðublöð vegna leyfa varðandi sprengiefni eru aðgengileg á heimasíðu ríkislögreglustjóra.
Helstu lög og reglugerðir á þessu sviði:
- Vopnalög nr. 16/1998
- Reglugerð nr. 684/1999 um sprengiefni
- Reglugerð nr. 984/2000 um flutning á hættulegum farmi
- Vinnueftirlit ríkisins – www.vinnueftirlit.is
- Ríkislögreglustjóri – www.rls.is


