Skipstjórnarréttindi

Útgáfa atvinnuskírteina

Íslenskir ríkisborgarar, 18 ára og eldri, sem fullnægja skilyrðum laga nr. 113/1984 og reglna settum skv. þeim, um menntun, siglingatíma, aldur og heilsufar, eiga rétt á að fá útgefin atvinnuskírteini og stunda atvinnu sem vélstjórnarmaður samkvæmt þeim.

Atvinnuskírteini eru gefin út af sýslumönnum og Tollstjóranum í Reykjavík og gilda þau til 5 ára í senn. Skírteinishafi skal hafa skírteinið meðferðis við vélstjórn og sýna það þegar löggæslumaður krefst þess.

 

Siglingastofnun Íslands annast útgáfu skírteina til starfa á farþegaskipum og flutningaskipum sem gefin eru út samkvæmt alþjóðasamþykkt um menntun og þjálfun, skírteini og vaktstöður sjómanna (STCW) frá 1978 með síðari breytingum.

 

Skilyrði útgáfu atvinnuskírteina

  • Umsækjandi hafi náð 18 ára aldri.
  • Umsækjandi sanni með læknisvottorði að hann fullnægi skilyrðum reglugerðar nr. 304/1993 um sjón, heyrn og heilbrigði skipstjórnarmanna, stýrimanna og vélavarða á íslenskum skipum og undirmanna á kaupskipum.
  • Umsækjandi fullnægi viðeigandi skilyrðum um menntun og siglingatíma, sbr. eftirfarandi:

 

Réttindi

Stig vélskóla

Starfstími

Atvinnu-

skírteini

Vélgæslumaður (VM)

B-námskeið

 

-

Vélgæslumaður á skipum allt að 20 brúttótonnum með aðalvél <</u>375 kW

Vélgæslumaður (VM)

A-námskeið

 

-

Vélgæslumaður á skipum allt að 20 brúttótonnum með aðalvél <</u>375 kW

Vélavörður (VV)

1. stig

-

Vélavörður á skipi;

Vélavörður (VVy)

1. stig

6 mán. siglingatími sem VV

Yfirvélstjóri; aðalvél <</u>375 kw. og VV

Vélavörður (VV)

2. stig

-

Vélavörður á skipi;

Vélavörður (VVy)

2. stig

5 mán. siglingatími sem VV

Yfirvélstjóri, aðalvél <</u>375 kw. og VV

Vélstjóri III (VS III)

2. stig

9 mán. siglingatími sem VV, þar af a.m.k. 5 mán. á skipi með 401-750 kw. vél.

Yfirvélstjóri; aðalvél <</u>750 kw. og VVy

Vélavörður (VV)

3. stig

-

Vélavörður á skipi;

Vélavörður (VVy)

3. stig

4 mánaða starfstími sem VV á skipi.

Yfirvélstjóri; aðalvél <</u>375 kw. og VV

Vélstjóri III (VS III)

3. stig

6 mán. starfstími sem VV á skipi m. aðalvél 401-750 kw.

Yfirvélstjóri; aðalvél <</u>750 kw. vél og VVy

Vélstjóri II (VS II)

3. stig

12 mán. starfstími sem VV/VS á skipi m. aðalvél >401 kw.

1. vélstjóri; aðalvél <</u>1500 kw. vél og VS III

Vélstjóri I (VS I)

3. stig

18 mánaða starfstími sem VS/VV á skipi, þar af a.m.k. 6 mán. sem VV, en 12 mánuði sem VS. Af vélstjóratímanum, VS a.m.k. 3 mánuði við >751 kw.

 

Yfirvélstjóri; aðalvél <</u>1500 kw. vél og VS II

2. vélstjóri á skipi með ótakmarkaða vélarstærð og  og VS II

Vélfræðingur IV (VF IV)

4. stig & sveinspróf í málmiðngrein

-

1.vélstjóri; aðalvél

< 1500 kW. vél

2. vélstjóri; vélarstærð ótakmörkuð og VS II.

Vélstjóri I (VS I)

4. stig & sveinspróf í málmiðngrein

6 mán. starfstími á skipi sem VS með aðalvél >751 kw.

Yfirvélstjóri; aðalvél <1500 kw. vél og VF IV

Vélfræðingur III (VF III)

4. stig & sveinspróf í málmiðngrein

12 mán. starfstími sem VS á skipi með aðalvél > 751 kw.

1. vélstjóri; aðalvél ótakmörkuð og VS I

Vélfræðingur II (VF II)

4. stig & sveinspróf í málmiðngrein

24 mán. starfstími sem VV/VS á skipi, þar af a.m.k. 12 mán. sem 1. VS á skipi með aflvél >1501 kw. að fengnum rétti til að öðlast atvinnuskírteini VF III.

 

Yfirvélstjóri; <3000 kw. vél og VF III

Vélfræðingur I (VF I)

4. stig & sveinspróf í málmiðngrein

36 mánaða starfstími sem VV eða VS á skipi, þar af a.m.k. 12 mánuði sem 1. VS á skipi með aflvél >1501 kw.

 

Yfirvélstjóri; aðalvél ótakmörkuð

 

Starfstími vélstjóra telst sá tími sem hann er lögskráður á skip og vinnur við það, að meðtöldum lögskráningardegi og afskráningardegi.  Einnig má telja störf við vélarupptekt um borð í skipi, í vélsmiðju eða í annarri sambærilegri málmiðnaðargrein og önnur lögskráð störf í vélarrúmi skipa til starfstíma, að hámarki til ¼ hluta starfstíma til atvinnuréttinda.

Heimilt er að taka tillit til starfsreynslu við vélstjórn við aðrar stærðir véla en greinir í yfirliti.

 

Starfstíma skal sanna með sjóferðabók eða vottorði lögskráningarstjóra.  Til staðfestingar starfstíma á skipum 12 rúml. og minni má leggja fram vottorð tveggja valinkunnra manna.

 

Endurnýjun atvinnuskírteina

Við endurnýjun atvinnuskírteina til vélstjórnar skal siglingatími umsækjanda vera a.m.k. 12 mánuðir á næstliðnum 5 árum.  Að öðrum kosti verður umsækjandi að gangast undir hæfnispróf eða námskeið skipulögð af Vélskóla Íslands. Heimilt er að meta sambærilegt starf í landi til siglingatíma og veita skírteini til næstu lægri stöðu en upprunalegt skírteini segir til um og að loknum 3ja mánaða siglingatíma er heimilt að endurnýja upprunalega skírteinið í samræmi við fyrri réttindi.

 

Við endurnýjun atvinnuskírteinis verður umsækjandi að skila læknisvottorði til að sýna fram á að hanns sé fær um að gegna starfinu af heilsufarsástæðum, sbr. reglugerð nr. 304/1993.

 

Helstu lög og reglugerðir á þessu sviði

Lög um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa, nr. 76/2001, ákvæði til bráðabirgða

Lög um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða á íslenskum skipum nr. 113/1984

Reglugerð um atvinnuskírteini skipstjórnar- og vélstjórnarmanna nr. 118/1996

Reglugerð um sjón, heyrn og heilbrigði skipstjórnarmanna, stýrimanna og vélavarða á íslenskum  skipum og undirmanna á kaupskipum nr. 304/1993

Rg. um framkvæmd námskeiða fyrir vélgæslumenn (VM), 246/2003

Lög um lögskráningu sjómanna nr. 43/1987

Reglugerð um lögskráningu sjómanna nr. 880/2001

Lög um skráningu skipa nr. 115/1985

 

Tengdar heimasíður

Siglingastofnun - www.sigling.is

Samgönguráðuneytið – www.samgonguraduneytid.is




Þetta vefsvæði byggir á Eplica