Leyfi, skírteini, skráningar
Hér er fjallað um leyfi og skírteini sem sýslumenn utan umdæmis sýslumannsins í Reykjavík gefa út eða afgreiða. Það fer eftir ákvæðum einstakra laga hver annast afgreiðslu eða útgáfu þessara leyfa og skírteina í umdæmi sýslumannsins í Reykjavík og er þess getið hverju sinni.
- Vegabréf
Þjóðskrá gefur út íslensk vegabréf. Sótt er um þau hjá sýslumönnum utan umdæmis sýslumannsins í Reykjavík en á höfuðborgarsvæðinu er aðalafgreiðsla þeirra hjá sýslumanninum í Kópavogi, Dalvegi 18, Kópavogi. Nánari upplýsingar á www.vegabref.is - Ökuskírteini
Sýslumenn utan umdæmis sýslumannsins í Reykjavík annast móttöku á umsóknum um ökuskírteini og afhendingu þeirra en lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins í umdæmi hans. Ríkislögreglustjóri er útgefandi ökuskírteina. - Leyfi til sölu gistingar og veitinga, tækifærisleyfi vegna skemmtanahalds og tímabundin áfengisveitingaleyfi
Sýslumenn utan umdæmis sýslumannsins í Reykjavík og lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins í umdæmi hans veita þessi leyfi. Um eftirtalin leyfi er að ræða, sbr. lög nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og samnefnda reglugerð nr. 585/2007: - a) Sala á gistingu
- b) Sala og veitingar hvers kyns veitinga í atvinnuskyni á veitingastöðum og gististöðum og öðrum stöðum, svo sem samkomusölum eða um borð í skipum.
- c) 1) Tækifærisleyfi vegna skemmtanahalds 2) Tímabundin áfengisveitingaleyfi
- d) Útleiga samkomusala í atvinnuskyni
Dvalarleyfi fyrir útlendinga
Sýslumenn utan umdæmis sýslumannsins í Reykjavík annast móttöku umsókna um dvalarleyfi fyrir útlendinga og afhendingu slíkra leyfa, en Útlendingastofnun í umdæmi sýslumannsins í Reykjavík. Útlendingastofnun annast úrvinnslu og útgáfu dvalarleyfa fyrir allt landið.
Nokkur leyfi sem lögreglustjórar einir gefa út en sækja má um og greiða fyrir hjá sýslumönnum:
Hér eru talin upp nokkur leyfi sem lögreglustjórar einir gefa út en fá mátti gefin út hjá öllum sýslumönnum utan Reykjavíkur til 1. janúr 2007. Leyfin eru þessi :
- Leyfi útgefin á grundvelli vopnalaga
Skipta má efninu í eftirfarandi undirflokka:
- Um skotvopn
Leyfi er varða innflutning og sölu skotvopna eru gefin út af ríkislögreglustjóra. Leyfi til þess að kaupa og eiga skotvopn eru gefin út af lögreglustjórum. - Um skotelda
Leyfi til framleiðslu, innflutnings og sölu skotelda í heildsölu eru gefin út af ríkislögreglustjóra. Leyfi til sölu skotelda í smásölu og leyfi til skoteldasýninga eru gefin út af lögreglustjórum. - Um sprengiefni
Leyfi til innflutnings og sölu eru gefin út af ríkislögreglustjóra. Leyfi til kaupa á sprengiefni og ýmis leyfi er varða notkun eru gefin út af lögreglustjórum.
Brennuleyfi (umsóknareyðublað fyrir lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins)
Umsókn um leyfi ti að kveikja varðeld (umsóknareyðublað fyrir lögregluna í Árnessýslu)
Umsókn um sinubrennu (umsóknareyðublað fyrir lögregluna í Árnessýslu)
Leyfi til skoteldasýsningar (umsóknareyðublað fyrir lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins)
- Leyfi til þess að reka spilakassa
- Leyfi til þess að reka knattborðstofu
- Leyfi til fallhlífarstökks
- Leyfi fyrir litmerkibyssum/paintball
- Leyfi til flutnings á hættulegum farmi


