Umboð Sjúkratrygginga Íslands
Sjúkratryggingar Íslands heyra undir heilbrigðisráðuneytiið og annast framkvæmd sjúkratrygginga. Jafnframt semur stofnunin um og greiðir fyrir heilbrigðisþjónustu. Sjúkratryggingar Íslands starfa eftir lögum nr. 112/2008 um sjúkratryggingar.
Sjúkratryggingar Íslands taka m.a. þátt í eftirfarandi kostnaði almennings vegna heilbrigðisþjónustu:
- Lækniskostnaði,
- tannlæknakostnaði,
- lyfjakostnaði,
- þjálfunarkostnaði,
- kostnaði við hjálpartæki,
- kostnaði við ferðir og sjúkraflutning,
- erlendum sjúkrakostnaði.
Sjúkratrygginar Íslands sjá einnig um greiðslu sjúkradagpeninga, framkvæmd slysatrygginga og sjúklingatrygginga. Slysatryggingar fela í sér greiðslu bóta vegna slysa við vinnu- heimilis- og íþróttaiðkun. Sjúklingatrygging snýr að réttindum einstaklinga í ákveðnum tilvikum vegna bóta fyrir líkamlegt eða geðrænt tjón sem verður í tengslum við rannsóknir eða sjúkdómsmeðferð hér á landi.
Umboð sjúkratrygginga hjá sýslumannsembættum hafa það hlutverk að annast upplýsingagjöf um sjúkra-, slysa- og sjúklingatryggingu. Umboðin annast einnig greiðslu á reikningum vegna tannlækninga og ferðakostnaðar auk þess að taka á móti gögnum og senda áfram til höfuðstöðva Sjúkratrygginga Íslands til frekari úrvinnslu.
Allar frekari upplýsingar um Sjúkratryggingar Íslands og réttindi til sjúkra- slysa og sjúklingatrygginga má finna á vef Sjúkratrygggina Íslands, www.sjukra.is.
Uppfært 13.04.2010.
