Umboð Tryggingastofnunar ríkisins

Almannatryggingar taka til

  • Lífeyristrygginga
  • Slysatrygginga
  • Sjúkratrygginga


Tryggingastofnun ríkisins annast almannatryggingar. Stofnunin heyrir undir velferðarráðuneytið.  Aðalskrifstofur hennar eru að Laugavegi 114 í Reykjavík.

Utan umdæmis sýslumannsins í Reykjavík annast embætti sýslumanna umboðsstörf fyrir Tryggingastofnun ríkisins.

Á vef stofnunarinnar, www.tr.is, eru veittar ýmsar upplýsingar um almannatryggingamál. Einnig má leita aðstoðar hjá þeim starfsmönnum sýslumannsembættanna sem annast þennan málaflokk.

Tryggingastofnun ríkisins starfar samkvæmt lögum um almannatryggingar nr. 100/2007 og lögum um félagslega aðstoð nr. 99/2007.



Merki Sýslumanna

Útlit síðu: