Einkennisfatnaður og merki sýslumanna
Í 4. mgr. 8. gr. laga nr. nr. 82/1989 um framkvæmdarvald ríkisins í héraði, sbr. 8. gr. laga nr. 24/2007, er kveðið á um að sýslumenn og löglærðir fulltrúar þeirra skuli bera einkennisfatnað eftir því sem ráðherra ákveður í reglugerð. Ákvæði um þetta er að finna í reglugerð nr. 480/2008 um einkennisfatnað og merki sýslumanna og löglærðra fulltrúa þeirra.
Samkvæmt reglugerðinni er einkennisfatnaður sýslumanna tvenns konar; annars vegar til nota við dagleg störf og hins vegar hátíðarbúningur. Þá er gert ráð fyrir sérstökum einkennisfatnaði löglærðra fulltrúa sýslumanna, sem í meginatriðum eru eins og einkennistanaður sýslumanna. Einnig eru í reglugerðinni ákvæði um sérstakar skikkjur til afnota við hjónavígslur.
![]() |
![]() |
|
|
Einkennisfatnaður notaður
við dagleg störf
|
Skikkja til afnota við hjónavíglsur |
Hátíðarbúningur |
Notkun einkennisfatnaðar sýslumanna
Um notkun einkennisfatnaðar sýslumanna gilda skv. reglugerðinni þessi ákvæði:
Einkennisfatnaði sem notast við dagleg störf skal skv. 10. gr. reglugerðarinnar klæðast sem hér segir:
- Við hátíðleg tækifæri og meiri háttar viðburði í héraði, sem embættismaður eða fulltrúi hans, sbr. 2. gr., er viðstaddur stöðu sinnar vegna.
- Við hjónavígslur.
- Við framkvæmd aðfarargerða utan skrifstofu sýslumanns.
- Við framkvæmd bráðabirgðagerða utan skrifstofu sýslumanns.
- Við öflun sönnunargagna vegna ætlaðra brota á hugverkaréttindum.
- Við nauðungarsölur.
- Við önnur verkefni utan starfsstöðvar þar sem embættismaður eða fulltrúi hans, sbr. 2. gr., kemur fram stöðu sinnar vegna.
Hátíðarbúning skal sýslumaður skv. 11. gr. reglugerðarinnar nota sem hér segir:
Sýslumaður skal nota hátíðarbúning við opinber og/eða hátíðleg tækifæri. Hátíðarbúning skal nota við eftirfarandi athafnir:
- Við heimsókn, móttöku og fylgd forseta Íslands eða annarra þjóðhöfðingja.
- Við hátíðleg tækifæri og meiri háttar viðburði í héraði, sem sýslumaður er viðstaddur stöðu sinnar vegna.
Sýslumanni er heimilt að nota hátíðarbúning við hjónavígslur.
Merki og einkenni sýslumanna
Í 3. gr. reglugerðar nr. 480/2008 um einkennisfatnað og merki sýslumanna og löglærðra fulltrúa þeirra segir um merki sýslumanna á einkennisbúningum þeirra:
Merki sýslumanna skal vera gylltur munstraður hringur og er hluta af sverðsblaði með hjöltum stungið niður í hringinn. Merkið skal vera 3,5 sm á hæð, breidd hjaltanna 3 sm, en hringurinn 2,5 sm í þvermál. Sjá má merkið á myndinni hér fyrir neðan.
Þess má geta að sýslumenn nota þetta merki sem merki félags síns, Sýslumannafélags Íslands.
Um einkennishnappa segir í reglugerðinni að þeir skuli vera hringlaga, kúptir, gylltir með upphleyptri mynd af skjaldarmerki Íslands.
Hnapparnir skulu vera í tveimur stærðum. Minni gerðin skal vera 1,6 sm í þvermál en hin stærri 2,4 sm í þvermál.
Um axlafetil segir að hann skuli fléttaður úr gylltum borða upphleyptum, þverbryddur að ofan og framan og ganga borðaendarnir felldir undan fremri bryddingunni. Fetillinn skal vera u.þ.b. 3 sm breiður að ofan og tvöfalt breiðari að framan.




