Um Sýslumannafélag Íslands

Um Sýslumannafélag Íslands

Hlutverk Sýslumannafélags Íslands er sem hér segir skv. 3. gr. laga félagsins:

a) að efla samhug og greiða fyrir samvinnu félagsmanna.

b) að vera ráðgefandi gagnvart ríkisstjórn og Alþingi um nýmæli í löggjöf, sem vænta má að snerti verksvið félagsmanna eða þegar óskað er eftir áliti félagsins.

c) að stuðla að samræmi í lagaframkvæmd og allri embættisfærslu félagsmanna.

d) að annast fyrirsvar fyrir félagsmenn í kaup- og kjaramálum.

e) að vera á verði um að vegur og kjör embætta þeirra, er félagsmenn skipa, sé í samræmi við mikilvægi þeirra og þá ábyrgð, sem þeim fylgir, og vera í því sambandi einstökum félagsmönnum til fulltingis.

Félagar í Sýslumannafélagi Íslands

Rétt til að vera félagar Í Sýslumannafélagi Íslands eiga allir sýslumenn á landinu, 24 talsins, en auk þess eru ríkissaksóknari, ríkislögreglustjórinn, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, saksóknarar, forstjóri Útlendingastofu og tollstjóri félagsmenn. Þeir sem voru félagar er þeir létu af störfum fyrir aldurs sakir eiga einnig aðild að félaginu. Samkvæmt félagatali 2010 eru 34 félagsmenn í Sýslumannfélagi Íslands.

Stjórn Sýslumannafélags Íslands

Skv. 4. gr. laga Sýslumannafélags Íslands skipa fimm menn stjórn félagsins. Formaður, sem kosinn er sérstaklega og fjórir meðstjórnendur. Stjórnin skjal kjósa úr sínum hópi varaformann, gjaldkera og ritara. Á aðalfundi félagsins 24. september 2010 var kjörinn formaður og stjórn fyrir næsta starfsár. Í framhaldinu skipti stjórn með sér verkum og er skipuð sem hér segir:

Þórólfur Halldórsson, sýslumaður í Keflavík, formaður - thorolfur@syslumenn.is  

Guðgeir Eyjólfsson, sýslumaður í Kópavogi, varaformaður - gudgeir@syslumenn.is

Anna Birna Þráinsdóttir, sýslumaður í Vík, ritari - annabirna@syslumenn.is - 

Jónas Guðmundsson, sýslumaður í Bolungarvík, gjaldkeri - jonas.gudmundsson@syslumenn.is

Inger L. Jónsdóttir, sýslumaður á Eskifirði, meðstjórnandi - inger.l.jonsdottir@syslumenn.is

.......................................................................................................................................................................

Aðsetur, kt. og bankaupplýsingar

Aðsetur Sýslumannafélags Íslands er á skrifstofu formanns hverju sinni,
sem nú er að Vatnsnesvegi 33, Keflavík.

Kt. félagsins er 541207-1550

Banki er Landsbanki Íslands Ísafirði, bankanr. 0156-26-1262.

Stjórn, Sýslumannafélag Íslands

      Á myndinni eruí efri röð f.v. Guðgeir Eyjólfsson; Inger L. Jónsdóttir og Jónas Guðmundsson og fremri röð f.v.Þórólfur Halldórsson og  Annar Birna  Þráinsdóttir



 Uppfært:  28.09.2010  


Þetta vefsvæði byggir á Eplica