Lög Sýslumannafélags Íslands
1. grein.
Félagið heitir Sýslumannafélag Íslands og hefur kennitölu 541207-1550. Heimili þess og varnarþing er á skrifstofu/heimili formanns hverju sinni.
2. grein.
Félagar geta orðið allir skipaðir sýslumenn, og þeir aðrir sem sækja um aðild og stjórn og félagsfundur samþykkja sem félagsmenn. Stjórn félagsins getur boðið settum sýslumönnum að sitja fundi í félaginu án atkvæðisréttar. Þá hafa þeir sem látið hafa af embætti fyrir aldurs sakir rétt til að vera í félaginu og eins þeir sem láta af störfum vegna heilsubrests, en án atkvæðisréttar.
3. grein.
Tilgangur félagsins er:
a) að efla samhug og greiða fyrir samvinnu félagsmanna.
b) að vera ráðgefandi gagnvart ríkisstjórn og Alþingi um nýmæli í löggjöf, sem vænta má að snerti verksvið félagsmanna eða þegar óskað er eftir áliti félagsins.
c) að stuðla að samræmi í lagaframkvæmd og allri embættisfærslu félagsmanna.
d) að annast fyrirsvar fyrir félagsmenn í kaup- og kjaramálum.
e) að vera á verði um að vegur og kjör embætta þeirra, er félagsmenn skipa, sé í samræmi við mikilvægi þeirra og þá ábyrgð, sem þeim fylgir, og vera í því sambandi einstökum félagsmönnum til fulltingis.
4. grein.
Stjórn Sýslumannafélgs Íslands skipa fimm menn. Formaður, sem kosinn er sérstaklega, og fjórir meðstjórnendur. Stjórnin kýs úr sínum hópi varaformann, gjaldkera og ritara. Stjórnarmaður fer með starf uns ný kosning í stöðuna hefur löglega farið fram.
Stjórn félagsins semur dagskrá og boðar til aðalfundar félagsins, er fari fram í september eða október ár hvert. Meirihluti stjórnar getur boðað til aukafunda, þegar hann telur þess þörf. Stjórnin er skyldug að halda félagsfund komi fram skrifleg beiðni um slíkt frá einum þriðja hluta félagsmanna og skal þá fundur haldinn innan mánaðar frá því að slík beiðni berst stjórn. Á milli funda fer stjórnin með öll sameiginleg málefni félagsins, svo sem fræðslu- menningar og hagsmunamál, framfylgir fundarsamþyktum og er í fyrirsvari fyrir félagið í heild og einstaka félagsmenn út á við.
5. grein.
Til aðalfundar félagsins skal boða með a.m.k. fjögurra vikna fyrirvara. Á aðalfundi ber stjórninni að flytja ýtarlega skýrslu um einstök störf sín og leggja fram endurskoðaða félagsreikninga til samþykktar.
Á aðalfundi fer fram kosning formanns, fjögurra meðstjórnenda og tveggja skoðunarmanna. Einnig fjallar aðalfundurinn um önnur mál, sem um er getið í fundarboði eða upp kunna að verða borin af fundarmönnum. Kosning formanns og meðstjórnenda skal vera skrifleg ef einhver fundarmanna óskar þess.
6. grein.
Afl atkvæða ræður úrslitum á félagsfundum og stjórnarfundum. Lögum félagsins verður þó aðeins breytt á aðalfundi og þarf til þess samþykkt a.m.k. tveggja þriðju hluta fundarmanna.
7. grein.
Stjórn félagsins ber að veita félagsmönnum jafnóðum, og þegar tilefni er til, upplýsingar um þau mál er hún hefur til umfjöllunar f.h. félagsmanna og varða kaup- og kjör l eða önnur mikilvæg hagsmunamál félagsmanna.
8. grein.
Félagsmenn greiða árgjald til félagsins eftir ákvörðun aðalfundar hverju sinni. Kostnað við störf félagsins skal greiða úr félagssjóði.
9. grein.
Stjórn félagsins ber að varðveita tryggilega bækur og skjöl félagsins.
10. grein.
Ákvörðun um slit félagsins verður einungis tekin á aðalfundi eða auka aðalfundi og þarf samþykki tveggja þriðju hluta allra félagsmanna. Sé ákveðið að slíta félaginu skal jafnframt tekin ákvörðun um hvert eignir félagsins renna, ef einhverjar verða.
Lög með áorðnum breytingum samþykkt á aðalfundi Sýslumannafélags Íslands 26. september 2008.
