Vinnumálastofnun

ENDURKRÖFUR VEGNA OFGREIÐSLNA HJÁ VINNUMÁLASTOFNUN

Sýslumaðurinn á Blönduósi – innheimtumiðstöð, innheimtir eftirtaldar kröfur fyrir Vinnumálastofnun (VMST):

  • Endurkröfur á ofgreiðslum úr atvinnuleysistryggingarsjóði sbr. 39. gr. l. nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
  • Endurköfur á ofgreiðslum úr Fæðingarorlofsjóð sbr. 15. gr. a. l. um fæðingar- og foreldraorlof nr. 95/2000.
  • Endurkröfur á ofgreiðslu úr Fæðingarorlofssjóði eða Atvinnuleysistryggingarsjóði fela í sér höfuðstól kröfunnar með 15% álagi á höfuðstól sbr. 2. mgr. 39. gr. l. nr. 54/2006 og 2. mgr. 15. gr. a. l. nr. 95/2000.

Almennt innheimtuferli

Fallist kröfuþoli ekki á að semja um greiðslur fer innheimtan eftir þeim reglum sem almennt gilda um innheimtu krafna í vanskilum hjá IMST hverju sinni.

Við innheimtu IMST koma til eftirgreind úrræði til að knýja á um að ofgreiddar bætur Vinnumálastofnunarinnar verði greiddar:

  • Innheimtubréf/greiðsluáskorun - samningar
  • Aðfararbeiðni.
  • Nauðungasölubeiðni.
  • Gjaldþrotabeiðni

Samningar um greiðslukjör

IMST hefur heimild til að gera greiðsluáætlun við kröfuþola um uppgjör kröfunnar en hefur ekki heimild til að fella kröfuna niður.

Vakin er athygli á að hægt er að greiða inn á bankareikning  0159-26-267, kennitala 570269-5269.

Hafið samband við IMST til að fá upplýsingar um nánari kjör á greiðsluáætlun.

Tilgreina þarf kennitölu og nafn skuldara við greiðslu í banka.

Vinsamlegast hafið samband við innheimtumiðstöð sekta og sakarkostnaðar ef óskað er eftir greiðsludreifingu. Hægt er að greiða með greiðslukorti og gera raðgreiðslusamninga.

Nánari upplýsingar má finna á vef Vinnumálastofnunar, www.vmst.is




Þetta vefsvæði byggir á Eplica