Tryggingastofnun ríkisins

KRÖFUR SEM TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS HEFUR INNT AF HENDI UMFRAM RÉTT

IMST sér um innheimtu á þeim kröfum Tryggingastofnunar ríkisins (TR), sem væru vegna greiðslna sem TR eða umboð hennar hafa innt af hendi umfram rétt samkvæmt lögum um almannatryggingar nr. 100/2007 og lögum um félagslega aðstoð nr. 99/2007

Almennt innheimtuferli

Fallist kröfuþoli ekki á að semja um greiðslur fer innheimtan eftir þeim reglum sem almennt gilda um innheimtu krafna í vanskilum hjá IMST hverju sinni.

Við innheimtu IMST koma til eftirgreind úrræði til að knýja á um að sektir og sakarkostnaður verði greiddur:

  • Innheimtubréf/greiðsluáskorun - samningar
  • Aðfararbeiðni.
  • Nauðungasölubeiðni.
  • Gjaldþrotabeiðni

Samningar um greiðslukjör

IMST hefur heimild til að gera greiðsluáætlun við kröfuþola um uppgjör kröfunnar en hefur ekki heimild til að veita afslátt af kröfum. Slíkt erindi þarf að bera undir samráðsnefnd TR um meðferð ofgreiðslna

Hafið samband við IMST til gera greiðsluáætlun. Vakin er athygli á að hægt er að greiða inn á bankareikning 0159-26-267, kennitala 570269-5269.

Tilgreina þarf kennitölu og nafn skuldara við greiðslu í banka.

Vinsamlegast hafið samband við innheimtumiðstöðina ef óskað er eftir greiðsludreifingu. Hægt er að greiða með greiðslukorti og gera raðgreiðslusamninga.

Nánari upplýsingar, m.a. um tilurð ofgreiðslna, má finna á vef Tryggingarstofnunar ríkisins, www.tr.is




Þetta vefsvæði byggir á Eplica