Sektir og sakarkostnaður

SEKTIR OG SAKARKOSTNAÐUR

Ákvörðun um sektir og sakarkostnað

Það skal tekið skýrt fram, að IMST vinnur ekki að stofnun eða álagningu sekta eða sakarkostnaðar, heldur að innheimtu þeirra eftir að til þeirra hefur verið stofnað.

Skv. reglugerð um innheimtu sekta og sakarkostnaðar nr. 208/2006 hefur IMST yfirumsjón yfir innheimtu á eftirfarandi kröfum:

  • Dómum eða viðurlagaákvörðunum af dómstólum.
  • Sektum skv. sektarboðum, árituðum af héraðsdómi
  • Sektum og sakarkostnaði skv. samþykktum sektargerðum lögreglustjóra þar sem sakborningur hefur gengist undir málalok með undirritun sinni.
  • Jafnvirðisupptöku, sbr. 3. tl., 69. gr. almennra hegningarlaga
  • Sektum og sakarkostnaði þar sem kröfur koma frá Norðurlöndunum á einstaklinga búsetta hér á landi. IMST sendir einnig innheimtukröfur til hinna Norðurlandanna vegna einstaklinga sem hafa brotið af sér hér á landi en eru búsettir á Norðurlöndunum.

Önnur verkefni IMST vegna sekta og sakarkostnaðs:

  • Boðanir og undirbúningur birtinga vegna áritaðra sektarboð
  • Aðfarar- og uppboðsmál vegna ógreiddra sekta/sakarkostnaðar
  • Ákvörðun um afplánun vararefsinga í samvinnu við fangelsismálastofnun ríkisins

Sektarboð

Lögreglustjórar, hver í sínu umdæmi, senda út sektarboð. Innheimtumiðstöðin sér um símsvörun vegna þessara mála og veitir grunnupplýsingar. Forræði þessara mála er þó hjá lögreglustjórunum og það er þeirra að ákveða, ef sekt er ekki greidd á tilsettum tíma, að senda málið til dómsáritunar eða að gefa út ákæru.

Almennt innheimtuferli

Við innheimtu IMST koma til eftirgreind úrræði til að knýja á um að sektir og sakarkostnaður verði greiddur:

  • Innheimtubréf/greiðsluáskorun - samningar
  • Aðfararbeiðni
  • Nauðungasölubeiðni
  • Afplánun vararefsingar

Fjárnám/nauðungarsala

Ef sekt/sakarkostnaður eru ekki greidd, eða samið um greiðslur, þrátt fyrir greiðsluáskoranir, skal innheimta hana eða eftirtöðvar með fjárnámi í eigum sektarþola með heimild í 3. mgr. 70. gr. l. 49/2005. Ef fjárnám skilar árangri er útbúin beiðni um nauðungarsölu á hinu fjárnumda hafi sektarþoli ekki greitt.

Vararefsing

Ef fjárnámsgerð er árangurslaus eða fyrir liggur að viðkomandi er eignarlaus skv. öðrum fyrirliggjandi upplýsingum tekur IMST ákvörðun um að vararefsingu sektar verði beitt sé krafan enn ógreidd. Ákvörðun um afplánun vararefsingar er tekin af starfsmönnum IMST í samráði við Fangelsismálastofnun en birt af lögreglu þar sem sektarþoli er búsettur. Mæti sektarþoli hvorki til afplánunar á tilskyldum tíma né sektin greidd, er lögreglu gert að handtaka hann og færa í afplánun. Ef sekt greiðist að fullu fellur afplánun niður. Innborgun frestar ekki afplánun.

Samfélagsþjónusta

Ef sektarupphæðin er 60.000 kr eða hærri er heimilt skv. lögum nr. 49/2005 að sækja um fullnustu vararefsingar með ólaunaðri samfélagsþjónustu, ef almannahagsmunir mæla ekki gegn því, minnst 40 klst. og mest 480 klst. Umsókn um samfélagsþjónustu skal skila til IMST sem framsendir hana til Fangelsismálastofnunar en þar er ákveðið hvar og á hvaða tímabili samfélagsþjónusta fer fram. Hafi sektarþoli fengið 5 eða fleiri sektir fyrir sambærileg brot eða ef sektarþoli á ólokin mál í refsivörslukerfinu kemur að öllu jöfnu ekki til greina að fullnusta vararefsingu með samfélagsþjónustu.

Samningar um greiðslukjör

Sektarboð

Innheimtumiðstöðinni er ekki heimilt að dreifa greiðslum vegna sektarboða.

Sektargerðir

Heimilt er að gera afborgunarsamning til allt að sex mánaða ef samið er um það innan 30 daga frá undirritun sektargerðar, sbr. 8. gr. reglugerðar um lögreglustjórasáttir nr. 205/2009.

Dómar, viðurlagaákvarðanir og sektarboð árituð af dómara

Heimilt er að leyfa að sekt sé greidd með afborgunum til allt að 12 mánaða frá því að sekt kemur til innheimtu, sbr. 2. mgr. 70. gr. laga nr. 49/2005 um fullnustu refsinga. Sama á við um sakarkostnað.  Heimilt er að veita lengri greiðslufrest ef sérstakar aðstæður eru fyrir hendi.

Vakin er athygli á að hægt er að greiða sektir/sakarkostnað á bankareikning  0159-26-267, kennitala 570269-5269. 

Tilgreina þarf kennitölu og nafn skuldara við greiðslu í banka.

Vinsamlegast hafið samband við innheimtumiðstöðina ef óskað er eftir greiðsludreifingu. Hægt er að greiða með greiðslukorti og gera raðgreiðslusamninga.

Áhugaverðir tenglar

www.domsmalaraduneyti.is - Vefur dómsmálaráðuneytisins. Hér má finna ýmsar upplýsingar um dóms- og mannréttindaráðuneytið og undirstofnanir þess.

 www.logreglan.is - Ýmsar upplýsingar um lög, reglugerðir, sektir og fl.

 www.us.is - Vefur umferðarstofu. Hér má m.a. finna sektarreikni fyrir hraðakstur og ölvunarakstur

www.althingi.is - Hægt að leita í lagasafni eftir númerum eða heiti laga

www.reglugerd.is - Vefur stjórnarráðsins; hægt að finna flestar reglugerðir

www.fangelsi.is - Vefurfangelsismálastofnunar, m.a. upplýsingar um vararefsingu og samfélagsþjónustu

www.haestirettur.is - Hægt að lesa hæstaréttardóma

www.domstolar.is - Vefur héraðsdómsdólanna

www.rikissaksoknari.is - Vefur ríkissaksóknara. Hér má t.d. finna upplýsingar um skráningu í sakaskrá




Þetta vefsvæði byggir á Eplica