Gjafsókn

ENDURKRÖFUR VEGNA GJAFSÓKNARMÁLA

Gjafsókn er veitt vegna mála sem rekin eru fyrir íslenskum dómstólum. Gjafsókn skuldbindur ríkið til að greiða þann málskostnað sem gjafsóknarhafi hefur sjálfur af máli, þ.e. þóknun lögmanns o.fl. Ríkið verður ekki skuldbundið til að greiða þá þóknun sem málflytjandi gjafsóknarhafa kann að áskilja sér heldur aðeins þá fjárhæð sem dómari ákveður handa honum. Gjafsóknarhafa eða lögmanni hans ber að snúa sér til dóms- og mannréttindaráðuneytisins vegna uppgjörs tildæmdrar málflutningsþóknunar og útlagðs kostnaðar.

Í þeim tilvikum sem ríkið eignast endurkröfu vegna gjafsóknar, sér innheimtumiðstöðin um innheimtuna.

Gjalddagi kröfunnar er dagsetning greiðslutilmæla innanríkisráðuneytisins.  Eindagi er einum mánuði eftir gjalddaga.  Frá gjalddaga reiknast ekki vextir.  Sé krafa ekki greidd á eindaga reiknast dráttarvextir frá gjalddaga til greiðsludags.

Við útreikning vaxta er farið eftir lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.

Almennt innheimtuferli

Fallist kröfuþoli ekki á að semja um greiðslur fer innheimtan eftir þeim reglum sem almennt gilda um innheimtu krafna í vanskilum hjá IMST hverju sinni.

Við innheimtu IMST koma til eftirgreind úrræði til að knýja á um að sektir og sakarkostnaður verði greiddur:

  • Innheimtubréf/greiðsluáskorun - samningar
  • Aðfararbeiðni.
  • Nauðungasölubeiðni.
  • Gjaldþrotabeiðni

Samningar um greiðslukjör

IMST hefur heimild til að gera greiðsluáætlun við kröfuþola um uppgjör kröfunnar.

Vakin er athygli á að hægt er að greiða inn á bankareikning  0159-26-267, kennitala 570269-5269.

Hafið samband við IMST til að fá upplýsingar um nánari kjör á greiðsluáætlun.

Tilgreina þarf kennitölu og nafn skuldara við greiðslu í banka.

Vinsamlegast hafið samband við innheimtumiðstöðina ef óskað er eftir greiðsludreifingu. Hægt er að greiða með greiðslukorti og gera raðgreiðslusamninga.

 Nánari upplýsingar um gjafsókn má finna hér á vef dómsmálaráðuneytisins




Þetta vefsvæði byggir á Eplica