STJÓRNVALDSSEKTIR, FÉVÍTI, DAGSEKTIR, SÁTTIR OG EFTIRLITSGJALD FJÁRMÁLAEFTIRLITSINS
Innheimtumiðstöðin sér um innheimtu á eftirfarandi kröfum Fjármálaeftirlitsins:
- Dagsektum og févíti.
- Stjórnvaldssektum sem Fjármálaeftirlitið leggur á einstaklinga og lögaðila.
- Sáttarboð og sáttargerðir sem Fjármálaeftirlitinu er heimilt að gera.
- Eftirlitsgjald Fjármálaeftirlitsins sem leggst á eftirlitsskylda aðila skv. lögum nr. 99/1999.
Almennt innheimtuferli
Fallist kröfuþoli ekki á að semja um greiðslur fer innheimtan eftir þeim reglum sem almennt gilda um innheimtu krafna í vanskilum hjá IMST hverju sinni.
Við innheimtu IMST koma til eftirgreind úrræði til að knýja á um að sektir og sakarkostnaður verði greiddur:
- Innheimtubréf/greiðsluáskorun - samningar
- Aðfararbeiðni.
- Nauðungasölubeiðni.
- Gjaldþrotabeiðni
Samningar um greiðslukjör
IMST hefur heimild til að gera greiðsluáætlun við kröfuþola um uppgjör kröfunnar.
Vakin er athygli á að hægt er að greiða inn á bankareikning 0159-26-267, kennitala 570269-5269.
Hafið samband við IMST til að fá upplýsingar um nánari kjör á greiðsluáætlun.
Tilgreina þarf kennitölu og nafn skuldara við greiðslu í banka.
Vinsamlegast hafið samband við innheimtumiðstöðina ef óskað er eftir greiðsludreifingu. Hægt er að greiða með greiðslukorti og gera raðgreiðslusamninga.
Nánari upplýsingar má finna á vef Fjármálaeftirlitsins, www.fme.is


