Bótanefnd

ENDURKRÖFUR BÓTA SEM RÍKISSJÓÐUR HEFUR GREITT ÞOLENDUM AFBROTA

Ríkissjóður greiðir bætur til þolenda tiltekinna afbrota og tekur bótanefnd sem starfar skv. l. nr. 69/1995, um ákvörðun um bætur. Þegar ríkissjóður greiðir bætur til þolenda afbrota getur myndast endurkröfurréttur ríkisins á hendur brotavalds.

Innheimtumiðstöðin beinir kröfu um endurgreiðslu að tjónvaldi og nemur krafan andvirði bóta sem greiddar eru brotaþola skv. ákvörðun bótanefndarinnar, auk vaxta.

Gjalddagi kröfunnar er dagsetning greiðslutilmæla Bótanefndar. Eindagi er tveimur mánuðum eftir gjalddaga.  Frá gjalddaga reiknast ekki vextir.  Sé krafa ekki greidd á eindaga reiknast dráttarvextir frá gjalddaga til greiðsludags.

Almennt innheimtuferli

Fallist kröfuþoli ekki á að semja um greiðslur fer innheimtan eftir þeim reglum sem almennt gilda um innheimtu krafna í vanskilum hjá IMST hverju sinni.

Við innheimtu IMST koma til eftirgreind úrræði til að knýja á um að sektir og sakarkostnaður verði greiddur:

  • Innheimtubréf/greiðsluáskorun - samningar
  • Aðfararbeiðni
  • Nauðungasölubeiðni
  • Gjaldþrotabeiðni

Samningar um greiðslukjör

IMST hefur heimild til að gera greiðsluáætlun við kröfuþola um uppgjör kröfunnar.

Vakin er athygli á að hægt er að greiða inn á bankareikning  0159-26-267, kennitala 570269-5269.

Hafið samband við IMST til að fá upplýsingar um nánari kjör á greiðsluáætlun.

Tilgreina þarf kennitölu og nafn skuldara við greiðslu í banka.

Vinsamlegast hafið samband við innheimtumiðstöðina ef óskað er eftir greiðsludreifingu. Hægt er að greiða með greiðslukorti og gera raðgreiðslusamninga. 

Nánari upplýsingar um bótanefnd má finna hér




Þetta vefsvæði byggir á Eplica