Umdæmið
Umdæmi Árnessýslu
Stærð umdæmis sýslumannsins á Selfossi
Sýslumörk í grófum dráttum:
Að vestan úr Seljubótarnefi í Krísuvíkurbjargi milli Herdísarvíkur og Krísuvíkur, í sýslustein undir Geitahlíðum, þaðan um Brennisteinsfjöll í Litla-Kóngsfell við Bláfjöll og eftir hæstu tindum Bláfjalla í hæsta tind Vífilfells. Þaðan í sýslustein sunnan Lyklafells, þaðan í hæsta hólinn í Borgarhólum á Mosfellsheiði. Þaðan um Hlíðar, Botnsúlur, Kvígindisfell og Hrúðurkarla í vesturöxl Þórisjökuls. Um hábungu Þórisjökuls og Langjökuls að vatnaskilum á Kili. Um Strýtur í Kjalhrauni um þveran Hofsjökul í Klakk í Þjórsárbotnum. Þaðan fylgja mörkin Þjórsá til ósa.


