Umdæmið

Um umdæmi sýslumannsins á Höfn ( Austur-Skaftafellsssýsla )

Umdæmi sýslumannsins á Höfn er Austur-Skaftafellssýsla en í sýslunni voru til skamms tíma sex sveitarfélög sem nú hafa öll sameinast í Sveitarfélagið Hornafjörð.


Umdæmið er talið um 6173 ferkílómetrar og eru mörk umdæmisins að austan um Lónsheiði og Hvalnesskriður, en að vestan eru mörkin á Skeiðarársandi skammt frá Gígjukvísl.

Gróið land er aðeins 358 ferkílómetrar, en mikill hluti láglendisins eru gróðurlitlir sandar og jökulaurar, en Vatnajökull liggur að baki allri sýslunni og frá honum falla mikil vatnsföll sem oft hafa skipt um farvegi í aldanna rás og með þeim hætti eyðilagt gróður og mannvirki í stærri mæli en þekkist annars staðar á landinu. Á síðustu áratugum hafa miklar fyrirhleðslur verið gerðar við ár og þær eftir það orðið stöðugri í sínum farvegum. Jafnframt þessu voru árnar brúaðar og þegar lokið var gerð hringvegar um landið 1974 þá var það með brúargerð á Skeiðará, en þar er lengsta brú á Íslandi. Auk Skeiðarár voru einnig brúuð stórfljótin Gýjukvísl og Núpsvötn í þessum lokaáfanga við gerð hringvegarins.


Margir skriðjöklar ganga niður frá Vatnajökli og eru þeirra helstir Breiðármerkurjökull og Skeiðarárjökull. Þjóðgarður er í Skaftafelli og er hann vinsæll af því fólki sem sækist eftir náttúruskoðun og þaðan er gengið á Hvannadalshnjúk á Öræfajökli sem er hæsti tindur landsins, 2119 metrar. Í landi þjóðgarsins er Bæjarstaðaskógur sem er einn af elstu birkiskógum landsins. Veðursælt er í Skaftafelli, gróðursælt og landslag fagurt.
Jökulsárlón á Breiðamerkursandi þykir einstök náttúruperla og er vinsælt af ferðafólki.
Lónsöræfi eru inn af Lóni, inn með Jökulsá. Þar er landslag mjög sérstakt og vaxandi ferðamannastraumur hefur verið þangað undanfarin ár.
Mikil sandrif liggja með ströndinni og er hún því nær hafnlaus, nema á Höfn sem er eini þéttbýlisstaðurinn í umdæminu og þar er eina höfnin allt frá Þorlákshöfn að vestan og frá Djúpavogi að austan. þar hefur lengst af verið blómleg útgerð, enda stutt á gjöful fiskimið, en hafnarskilyrði eru þó erfið um hinn hættulega Hornafjarðarós. Íbúafjöldu í umdæminu er um 2400 og eru flestir, eða um 1700 búsettir á Höfn. Flugvöllur er skammt frá Höfn og einnig er ófullkominn flugvöllur við Fagurhólsmýri.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica