Saga embættis sýslumannsins í Bolungarvík
Frá 1934 til 1974 voru þeir sem gegndu því embætti sem nú samsvarar embætti sýslumannsins í Bolungarvíkn nefndir lögreglustjórar og voru þeir jafnframt framkvæmdastjórar sveitarfélagsins sem þá nefndist Hólshreppur. Eftir 5. apríl 1974 er sveitarfélagið fékk kaupstaðarréttindi nefndust þeir sem gegndu embættinu bæjarfógetinn í Bolungarvík og sveitarfélagið Bolungarvíkurkaupstaður, frá og með þeim tíma hættu þeir jafnframt afskiptum af stjórn sveitarfélagsins. Frá og með 1. júlí 1992 nefnast þeir sem gegna embættinu sýslumaðurinn í Bolungarvík. Þá var dómsvald jafnframt fært frá embættinu til sérstakra dómstóla. 1. janúar 2007 var lögreglustjórn og tollstjórn færð frá embættinu. Með reglugerð nr. 8/2009 um skoðun ökutækja var embættinu falin álagning og innheimta vanrækslugjalds á landsvísu.
Þessir hafa gegnt embætti lögreglustjóra / bæjarfógeta / sýslumanns í Bolungarvík
Páll Jónsson, lögreglustjóri, 1934 - 1940
Jóhann Teitsson, lögreglustjóri, 1940
Sigurður M. Helgason, lögreglustjóri, 1940 - 1945
Axel V. Tulinius, lögreglustjóri, 1945 - 1953
Kristján Ólafsson, lögreglustjóri, 1948 - 1949
Friðrik Sigurbjörnsson, lögreglustjóri, 1953 - 1963
Jón G. Tómasson, lögreglustjóri, 1963 - 1966
Hafsteinn Hafsteinsson, lögreglustjóri 1966 - 1968
Þorkell Gíslason, lögreglustjóri 1968-1972
Gísli Ísleifsson, lögreglustjóri 1972 - 1973
Barði Þórhallsson, lögreglustjóri frá 1973 - 1974 og bæjarfógeti frá 1974 - 1977
Halldór Kristinsson, bæjarfógeti 1977 - 1986
Adólf Adólfsson, bæjarfógeti 1986 - 1990
Jónas Guðmundsson, bæjarfógeti 1990 - 1992 og sýslumaður frá 1992


