Álagning og innheimta vanrækslugjalds

Álagning og innheimta vanrækslugjalds

Ákvæði um skoðun ökutækja og álagningu vanrækslugjalds ef hún er vanrækt er að finna í 67. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með síðari breytingum.  Þar er mælt fyrir um að ráðherra setji reglur um skoðun ökutækja og að lagt skuli á gjald, vanrækslugjald að fjárhæð 15.000 kr., ef ökutæki er ekki fært til skoðunar á réttum tíma skv. þeim reglum.  Reglur um skoðun ökutækja og álagningu og innheimtu vanrækslugjalds er að finna í reglugerð nr. 8/2009 um skoðun ökutækja.

Í reglugerðinni er mælt fyrir um álagningu vanrækslugjalds sé ökutæki ekki fært til aðalskoðunar eða endurskoðunar innan þeirra tímamarka sem þar er kveðið á um.  Skráður eigandi ökutækis ber ábyrgð á að það sé fært til skoðunar en umráðamaður þegar umráð þess byggjast á eignaleigusamningi við fjármálafyrirtæki.  Gjaldið skal greitt við skoðun ökutækisins.  Sé gjaldið greitt og ökutæki fært til skoðunar, eftir atvikum aðalskoðunar eða endurskoðunar, innan mánaðar frá því að það var lagt á skal það lækka í 7.500 kr.

slumaðurinn í Bolungarvík annast álagningu og innheimtu vanrækslugjalds.  Það skal lagt á með skriflegri tilkynningu sem send skal eiganda ökutækisins (umráðamanni).  Mótbárur eða varnir vegna álagðs gjalds skulu hafa borist embætti hans innan sama tíma.  Taki sýslumaður mótbárur og varnir vegna álagningar vanrækslugjalds gildar, getur hann eftir atvikum frestað álagningu gjaldsins eða fellt hana niður. 

Athugasemdir eða mótbárur vegna álagningar vanrækslugjalds má senda sýslumanninum í Bolungarvík sem hér segir: 

1)  Bréflega á skrifstofu sýslumanns, Aðalstræti 12, 415 Bolungarvík.  2)  Á netfangið vekja@syslumenn.is eða 3)  Á sérstökum eyðublöðum sem vísað er til neðst hér í umfjölluninni.  Upplýsingar um álagningu og innnnheimtu gjaldsins má einnig fá hjá embættinu í s. 456-1200.

 

Hvenær árs skal ökutæki í síðasta lagi fært til skoðunar: 

Ákvæði um þetta er að finna í II. og III. kafla reglugerðar um skoðun ökutækja.  Má í aðalatriðum flokka reglurnar í þrennt:

1)  Bifreið og eftirvagn skal færa til aðalskoðunar í þeim mánuði sem síðasti tölustafur á skráningarmerki ökutækis vísar til.  Þannig skal t.d. ökutæki með skráningarmerki sem endar á 1 fært til skoðunar í janúar, ökutæki með skráningarmerki sem endar á 3 í mars og ökutæki sem endar á 0 í október. 

2)  Ökutæki með einkamerki.  Hafi ökutæki með einkamerki tölustaf sem síðasta staf á skráningarmerki, ræðst skoðunarmánuður af honum.  Bókstafur sem síðasti stafur á skráningarmerki jafngildir hins vegar 5 sem síðasti tölustafur á skráningarmerki. 

3)  Fornbifreið, húsbifreið, bifhjól, þ.m.t. fornbifhjól og létt bifhjól, hjólhýsi, fellihýsi og tjaldvagn skal færa til skoðunar fyrir 1. ágúst á skoðunarári.

Hafi eigandi (umráðamaður) ökutækis ekki átt þess kost að færa ökutækið til aðal­skoðunar í skoðunarmánuði þess, skal það gert í síðasta lagi fyrir lok annars mánaðar þaðan í frá.  Heimilt er þó að færa ökutæki til skoðunar allt að 6 mánuðum fyrr á almanaksárinu og 10 mánuðum fyrr, hafi ökutækið gilda skoðun sem fram fór fyrir 1. nóvember liðins árs. 

Á forsíðu vefs Umferðarstofu, http://www.us.is/ má með því að slá inn skráningarnúmer ökutækis sjá í hvaða mánuði það skal fært í skoðun.

Í lok hvers árs auglýsir sýslumaðurinn í Bolungarvík  hvenær vanrækslugjald leggst á árið á eftir og skv. síðustu auglýsingu frá desember 2011 leggst það á sem hér segir: 

Vanrækslugjald á árinu 2012 leggst á ökutæki sem ekki hefur verið fært til skoðunar skv. reglugerð um skoðun ökutækja með áorðnum breytingum sem hér segir:

    Á ökutæki með 0 í endastaf skráningarmerkis sem færa átti til skoðunar í október 2011 leggst vanrækslugjald á 3. janúar 2012.
    Á ökutæki með 1 í endastaf skráningarmerkis leggst vanrækslugjald á 3. apríl 2012. 
    Á ökutæki með 2 í endastaf skráningarmerkis leggst vanræskugjald á  1. maí 2012. 
    Á ökutæki með 3 í endastaf skráningarmerkis leggst vanrækslugjald á 1. júní 2012.
    Á ökutæki með 4 í endastaf skráningarmerkis leggst vanrækslugjald á 3. júlí 2012.
    Á ökutæki með 5 í endastaf skráningarmerkis leggst vanrækslugjald á 1. ágúst 2012.
    Á ökutæki með 6 í endastaf skráningarmerkis leggst vanrækslugjald á 1. september 2012.
    Á ökutæki með 7 í endastaf skráningarmerkis leggst vanrækslugjald á 2. október 2012.
    Á ökutæki með 8 í endastaf skráningarmerkis leggst vanrækslugjald á 1. nóvember 2012.
    Á ökutæki með 9 í endastaf skráningarmerkis leggst vanrækslugjald á 1. desember 2012. 
    
    1. ágúst 2012 leggst gjaldið á ökutæki með einkamerki sem ekki enda á tölustaf.

    2. október 2012 leggst gjaldið á fornbifreiðar, húsbifreiðar, bifhjól, þar með talin fornbifjól og létt bifhjól, hjólhýsi (fellihýsi) og tjaldvagna, sbr. 7. gr. reglugerðarinnar með áorðnum breytingum.

Vanrækslugjald leggst á þau ökutæki sem ekki hafa verið færð til endurskoðunar skv. ákvæðum reglugerðar um skoðun ökutækja þegar liðinn er mánuður frá lokum þess mánaðar er ökutækið skyldi fært til endurskoðunar samkvæmt ákvörðun skoðunarmanns.

Um það hvaða ár ökutæki á að færast til skoðunar og hve mörg ár skuli líða milli skoðana skal vísað til reglugerðar um skoðun ökutækja.

 

Innheimta vanrækslugjalds

Tveimur mánuðum eftir álagningu vanrækslugjalds ber að hefja innheimtu þess hafi ökutækið sem krafan er sprottin af ekki verið fært til skoðunar og gjaldið greitt innan þess tíma.  Færist krafan þá í heimabanka eiganda (umráðamanns) og má greiða hana þar óháð þvi hvort ökutækið hafi verið fært til skoðunar eða ekki.  Þá ber skv. 3. og 4. mgr. 109. gr. umferðarlaga að senda eiganda ökutækisins eða umráðamanni, á sannanlegan hátt, tilkynningu um að krafist verði aðfarar (fjárnáms) eða nauðungarsölu (uppboðs á ökutæki) að tilteknum tíma liðnum enda hafi greiðsla þá eigi verið innt af hendi.  Verði gjaldið ekki greitt innan tilgreinds frests og engar mótbárur eða varnir hafa verið hafðar uppi má krefjast nauðungarsölu á ökutækinu til lúkningar gjaldinu án undangengins fjárnáms, en gjaldið nýtur lögveðsréttar.  Einnig má krefjast fjárnáms hjá þeim sem ber ábyrgð á greiðslu gjaldsins skv. 1. mgr. án undangengins dóms eða sáttar.  

 

Spurningar og svör

1)  Eru einhver úrræði til að afstýra því að vanrækslugjald leggist á ökutæki sem ekki hefur verið fært til lögmæltrar skoðunar og frestur til að færa það til skoðunar að líða? 

Svar:  Álagningu vanrækslugjalds á ökutæki sem ekki hefur verið fært til skoðunar á tilsettum tíma skv. reglugerð um skoðun ökutækja verður ekki afstýrt nema með eftirtöldum úrræðum:  

a)  Afskráningu ökutækis úr ökutækjaskrá.  Nálgast má frekari upplýsingar og eyðublað fyrir afskráningarbeiðni ökutækis hér á vef Umferðarstofu, us.is.  Við það er miðað að ef ökutæki er afskráð til úreldingar innan tveggja mánaða frá því að gjaldið var lagt á sé heimilt að fella álagninguna niður.  Sama á við ef ökutæki er afskráð úr landi.

b)  Með því að leggja skráningarmerki ökutækis inn hjá Umferðarstofu eða skoðunarstöð.  Ef ökutæki verður ekki notað eða er eða verður óskoðunarhæft til lengri eða skemmri tíma má leggja inn skráningarmerki þess, þ.e. fjarlægja þau af ökutækinu og afhenda í skoðunarstöð eða hjá Umferðarstofu. 

c)  Tímabundin skráning ökutækis úr umferð.  Nálgast má beiðni um tímabundna skráningu ökutækis úr umferð hér á vef Umferðarstofu us.is/.  Sé fallist á beiðni fær umsækjandi sendan miða til að líma á skráningarmekri ökutækisins með áletruninni "Notkun bönnuð". 

d)  Sé skráður eigandi eða umráðamaður ökutækis búsettur fjær næstu skoðunarstofu en 80 km og hann hafi ekki átt þess kost að   að færa ökutæki sitt til skoðunar innan frests getur hann tilkynnt embætti sýslumannsins í Bolungarvík, að hann eigi þess ekki kost að færa ökutæki sitt til skoðunar innan frest skv. 2. mgr. 6. gr. reglugerðar um skoðun ökutækja og óska eftir viðbótarfresti í allt að tvo mánuði til að færa það til skoðunar.  Nálgst má eyðublað fyrir þessa tilkynningu hér.

Áhersla er lögð á að til þeirra úrræða sem nefnd hafa verið skal hafa verið gripið áður en gjaldið er lagt á. 

Ef vanrækslugjald hefur þegar verið lagt á ökutæki er hægt að halda þeim 50% afslætti sem veittur er þegar ökutæki er fært til skoðunar innan mánaðr frá álagningu ef gripið er til ráðstafna skv. liðum b) og c) innan sama tíma.

Ekki er skylt að greiða þegar áfallið vanrækslugjald þegar ökutæki er afskráð, skráningarmerki þess lögð inn hjá skoðunarstöð eða óskað tímabundinnar skráningar ökutækisins úr umferð (með miða).  Innnlögð skráningarmerki verða hins vegar ekki afhent nema álagt gjald sé greitt.   

 

2)  Nú er ökutæki í því ástandi vegna bilunar eða vegna þess að varahlutir fást ekki að það telst ekki skoðunarhæft.  Er hægt að fá undaþágu á eða frest frá álagningu gjaldsins meðan reynt er koma hlutunum í horf? 
Svar:  Ekki er unnt að fá undanþágu en að öðru leyti er vísað til svara við spurningu nr. 1.  Þó er í 4. mgr. 13. gr. reglugerðar um skoðun ökutækja ákvæði sem kveður á um að sé við aðalskoðun gerð athugasemd um atriði, sem ekki er unnt vegna skorts á varahlutum að bæta úr innan tilskilins frests, sé heimilt að veita mánaðar frest til viðbótar áður útgefnum fresti, að því tilskildu að áður útgefinn frestur sé ekki útrunninn. Eigandi (umráðamaður) ökutækis skal framvísa staðfestingu frá skoðunarstofu þess efnis ef eftir því er leitað.

 

3)  Er unnt að fá álagningu vanrækslugjalds frestað eða álgt gjald niðurfellt vegna veikinda eiganda/umráðamanns ökutækis eða af öðrum slíkum ástæðum?
Svar:  Að jafnaði er ekki unnt að fá undanþágu þegar svona stendur á en í sérstökum tilfellum getur frestun álagningar komið til greina, þannig að henni verði fresta um t.d. einn mánuð.  Hefur þá verð miðað við veikindi a.m.k. síðustu 20 dagana áður en frestur rann út.  Skal þá að jafnaði framvísað læknisvottorði eða öðrum samsvarandi gögnum.  Sjá form fyrir umsókn hér.

 

4)  Hvaða áhrif hefur umsókn eða samþykki um greiðsluaðlögun og skyldu til greiðslu vanrækslugjalds? 

Svar:  Þeir einstaklingar sem hafa fengið samþykktan samning um greiðsluaðlögun skv. umsókn sem lögð var inn til Umboðsmanns skuldara eftir 1. júlí 2011 er óskilt  að greiða vanrækslugjald sem lagðist á áður en umsókn var móttekin.  Hins vegar gildir sú regla um þá sem sóttu um greiðsluaðlögun fyrir 1. júlí 2011 að þeim er óskilt að greiða varnrækslugjald líkt og aðrar kröfur eftir móttökudag umsóknar til Umboðsmanns skuldara.  Sá sem óskar eftir að fá frest á greiðslu vanrækslugjalds skal framvísa um það staðfestingu frá embætti Umboðsmanns skuldara. 

 

5)  Ef svokallaður hemlaprófari fyrir ökutæki sem eru meira en 3,5 tonn að þyngd er ekki í skoðunarstöð eða ekki verður komist í hann í þeirri sömu skoðunarstöð nema á ákveðnum tímum ársins og önnur skoðunarstöð er ekki í nágrenninu er þá kostur að sækja um undanþágu frá greiðslu vanrækslugjalds?  

Svar:  Eins og reglugerð nr. 8/2009 um skoðun ökutækja er úr garði gerð er ekki unnt að afstýra álagningu gjaldsins en að vissum skilyrðum uppfylltum má óska niðurfellingar gjaldsins þegar svona stendur á.  Sjá form fyrir umsókn hér.

 

6)  Er möguleiki að greiða vanrækslugjaldið án þess að færa ökutæki til skoðunar til að fá helmings afsláttinn?  
Svar:  Nei, ekki er unnt að greiða gjaldið svo gilt sé og njóta afsláttar.  Að liðnum tveimur mánuðum frá álagningu gjaldsins má þó greiða það án þess að ökutæki sé fært til skoðunar.

 

7)  Leggst einhver aukinn kostnaður á að liðnum tveimur mánuðum frá gjalddaga ef gjaldið er ekki greitt?  
Svar:  Aukinn kostnaður leggst ekki á fyrr en sérstök innheimta gjaldsins hefst.  Þá leggst fyrst á gjald vegna áskorunarbéfs að fjárhæð 250 kr.   Greiðsist gjaldið ekki í beinu framhaldi leggst á kostnaður vegna sendingar sérstakrar greiðsluáskorunar, að fjárhæð ca. 1.500 - 2.000 kr. (fer eftir gjaldskrá stefnuvotta og Íslandspóst).  Komi til beiðni um nauðungarsölu leggst á kostnaður skv. lögum um aukatekjur ríkissjóðs vegna beiðni um nauðungarsölu á lausafé (sjá hér), sem er gjald til ríkissjóðs.  Komi til sölu ökutækis á uppboði kann talsverður kostnaður að leggjast á við það, allt þó eftir atvikum máls.  Komi t.d. til þess að færa þurfi ökuktæki á uppboðsstað eða aðrar slíkar ráðstafanir komi til má gera ráð fyrir að gjaldið hækki verulega. 

 

8.  Hvar á landinu eru skoðunarstofur og hvar má nálgast upplýsingar um hvenær skoðað er?  

Svar:  Nálgast má upplýsingar um hvar skoðunarstöðvar er að finna og hvar og hvenær skoðað er á vef þeirra þriggja fyrirtækja sem annast  skoðun, sem hér segir:

Á vef Aðalskoðunar hf., adalskodun.is . 

á vef Frumherja hf.,  frumherji.is . 

á vef Tékklands bifreiðaskoðunar ehf., tekkland.is.

Ýmsar aðar upplýsingar um skoðun ökutækja er einnig að finna á vef þessara þriggja fyrirtækja.    

 

Eyðublöð sem vísað er á:

Beiðni um frestun eða niðurfellingu álagningar vanrækslugjalds     Eyðublaðið er rafrænt  Sjá hér

Beiðni um formlegan úrskurð um niðurfellingu vanrækslugjalds     Eyðublaðið er rafrænt  Sjá hér

Beiðni um afskráningu ökutækis - afskráningarbeiðni á vef Umferðarstofu, us.is.  
   Á eyðublaðinu er einnig að finna ýmsar upplýsingar um afskráningu.    

Beiðni um tímabundna skráningu ökutækis úr umferð.  Á vef Umferðarstofu, us.is.

Beiðni um að ökutæki verði skráð í umferð.  Á vef Umferðarstofu, us.is 

 

1)  Hér á vef Umferðarstofu, us.is, má sjá texta reglugerðar nr. 8/2009 um skoðun ökutækja ásamt innfelldum síðari breytingum.

 

 

Uppfært 20.01.2012 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica