Starfsmannastefna

Starfsmannastefna/jafnréttisáætlun sýslumannsembættisins á Blönduósi

Markmið

  • Að embættið hafi á að skipa hæfum, áhugasömum, ánægðum og traustum starfsmönnum.

  • Að skapa eftirsóknarverðan vinnustað fyrir hæfa og metnaðarfulla starfsmenn og að starfsmenn fái tækifæri til þess að eflast í starfi.

  • Að tryggja góða vinnuaðstöðu fyrir starfsmenn og leggja áherslu á að aðbúnaður, starfsaðstæður og hollustuhættir séu í góðu horfi og stuðla þannig að hæfni, velgengni og vellíðan starfsmanna.

  • Að embættið gegni sem best hlutverki sínu og það uppfylli væntingar um góða þjónustu og vandaða stjórnsýslu


Sameiginleg markmið

  • Stjórnendur og starfsmenn myndi sterka liðsheild og að hver starfsmaður sé ánægður í starfi með það að markmiði að gera embættið að fyrirmyndarvinnustað.

  • Starfsmenn hafi fagmennsku, heiðarleika, samvinnu og þjónustulunda að leiðarljósi í störfum sínum, bæði gagnvart samstarfsfólki og viðskiptavinum.

  • Starfsmenn stuðli að jákvæðum starfsanda innan embættisins.

  • Stjórnendur og starfsmenn leitist við að laga sig að breyttum kröfum sem til þeirra eru gerðar á hverjum tíma.

  • Stjórnendur og starfsmenn leitist við að vinna saman að lausn vandamála á jákvæðan og sanngjarnan hátt.

  • Starfsmenn hjálpist að við úrlausn verkefna eins og kostur er.


Bætt opinber þjónusta

  • Starfsmönnum ber að leggja sitt af mörkum til þess að þjónusta embættisins verði svo góð sem kostur er og að þeim sem eftir henni leita sé sýnd virðing og þjónustulipurð. Verkefnum skal sinna af fagmennskuk og ábyrgð.

  • Starfsmenn upplýsi viðskiptavini um réttarstöðu þeirra í þeim málum sem þeir leita úrlausnar hjá embættinu og leiðrétta rangar hugmyndir sem þeir kunna að hafa um rétt sinn.

  • Starfsmenn ræði ekki í áheyrn viðskiptavina um málefni sem þeim eru óviðkomandi.


Ráðningar, upphaf starfs og starfslýsingar

  • Öll störf skulu auglýst í samræmi við 7. gr. laga um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna nr. 70/1996. Tilgangurinn með því er að fá sem hæfastan starfsmann og gefa sem flestum færi á að leggja inn umsókn.

  • Við val á nýjum starfsmanni skal leggja mat á hæfi, menntun og reynslu sem nýtist í starfi og jafnframt skal hafa að leiðarljósi ákvæði laga um jafna stöðu karla og kvenna.

  • Nýjum starfsmanni skal leiðbeina fyrstu dagana þannig að hann öðlist sem fyrst þekkingu á starfseminni. Tryggja skal nýjum starfsmönnum starfsþjálfun við hæfi.

  • Kynna nýjan starfsmann fyrir starfsmönnum og athuga að vinnuaðstaða sé með viðeigandi hætti.

  • Að starfslýsingar liggi fyrir um öll störf til þess að starfsmenn viti í megindráttum til hvers ætlast er af þeim með tilliti til verkefna, árangurs og ábyrgðar. Starfslýsing er ekki tæmandi talning verkefna heldur ber starfsmanni að sinna þeim verkefnum sem yfirmaður felur honum hverju sinni.

  • Starfslýsingar skulu endurskoðaðar a.m.k. einu sinni á ári.

  • Starfsmannasamtöl skulu haldin árlega eða oftar ef þurfa þykir. Í starfmannasamtölum skal könnuð starfsánægja starfsmanns, árangur og væntingar til starfsins og setja sameiginleg markmið um starfs- og símenntun.


Fræðslustefna

  • Konur og karlar hafi sömu möguleika til endurmenntunar og starfsþjálfunar til þess að auka hæfni í starfi eða til undirbúnings öðrum störfum innan embættisins.

  • Embættið gefur starfsmönnum kost á starfstengdri menntun og þjálfun til að gera þá hæfari til að sinna störfum sínum og mun standa fyrir fræðslu og námskeiðum að því marki sem kostur er.

  • Starfsmenn miðli þeirri þekkingu sem þeir hljóta við endurmenntun og í starfi til annarra starfsmanna.

  • Stjórnendur og aðrir starfsmenn beri jafna ábyrgð á því að starfs- og endurmenntun sé sinnt sem skyldi.


Trúnaður

  • Starfsmenn undirriti heitstaf við upphaf starfs þar sem þeir heita að gæta þagmælsku um atriði sem þeir komast að í starfi sínu. Þagnarskylda helst þó starfsmenn láti af störfum.

  • Starfsmenn gæti fyllsta öryggis um vörslu gagna og upplýsinga í starfi sínu og gæta þess að fylgja reglum um persónuvernd.


Fjölskyldu- og jafnréttisstefna

  • Í samræmi við jafnréttislög nr. 96/2000 skal stuðla að jafnri stöðu karla og kvenna hjá embættinu og jöfnum tækifærum starfsmanna á sem flestum sviðum, óháð kynferði

  • Konur og karlar sem vinna sambærileg störf skulu greidd sambærileg laun og njóta sömu kjara.

  • Kynbundin mismunun er óheimil í hvaða formi sem hún birtist.

  • Auglýst störf skulu ókyngreind. Við ráðningu skulu jafnréttissjónarmið höfð til hliðsjónar ásamt öðrum mikilvægum sjónarmiðum. Starfsmönnum skal gert kleift að samræma þarfir starfs- og fjölskylduábyrgðar og skulu eiga möguleika á sveigjanlegum vinnutíma eftir því sem aðstæður leyfa.

  • Tekið verði tillit til starfsmanna sem þurfa að taka á sig aukna fjölskylduábyrgð vegna umönnunar langveikra barna eða annarra nákominna fjölskyldumeðlima.    


Hollusta og aðbúnaður

  • Embættið kappkosti að búa starfsmönnum sínum heilsusamlegt og gott vinnuumhverfi í samæmi við lög og reglur þar um og skapa vinnuaðstæður sem stuðla að velferð og árangri í starfi.

  • Embættið tryggi góða vinnuaðstöðu og öryggi starfsmanna á vinnustað.

  • Embættið og starfsmenn þess efli í sameiningu heilsuvernd starfsmanna



Starfsmannastefnan gildir gagnvart öllum starfsmönnum embættisins og skal hún endurskoðuð ef ástæða telst til. Starfsmannastefnan tekur gildi 1. mars 2008.


Starfsmannastefna ríkislögreglustjóra, sem sett var 1. janúar 2004, gildir jafnframt fyrir starfsmenn lögreglustjórans á Blönduósi, samhliða þessari stefnu.



Samþykkt á starfsmannafundi í sýsluskrifstofu

19. febrúar 2008


Bjarni Stefánsson


Þetta vefsvæði byggir á Eplica