Stefnuvottar

       Listi yfir stefnuvotta eftir umdæmum:

 

Gjaldskrá fyrir stefnuvotta útgefin af dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu 19. apríl 2010. Sjá hér.


Almennar reglur um stefnuvotta og birtingu stefnu

 

1 Skipun stefnuvotta

Samkvæmt 81. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála í héraði skipar sýslumaður a.m.k. einn mann í hverju sveitarfélagi í umdæmi sínu til að birta stefnur, kvaðningar og aðrar tilkynningar og annan til vara til að gegna þeim störfum í forföllum.

Ekki má skipa mann stefnuvott nema hann sé orðinn 25 ára að aldri, hafi óflekkað mannorð og hann sé svo heill og hraustur að hann geti gegnt starfanum.

Áður en stefnuvottur tekur til starfa skal hann undirrita drengskaparheit, sem sýslumaður varðveitir, um að hann muni rækja starfann af trúmennsku og samviskusemi.

2 Reglur um birtingu stefnuvotta

Þegar birta á stefnu afhendir stefnandi þeim sem annast birtingu frumrit hennar ásamt samriti handa hverjum sem á að birta fyrir.

Hverju samriti skal fylgja opið umslag merkt með nafni og heimili stefnda og áritað um að það hafi að geyma stefnu í tilteknu máli og hvenær birting megi síðast fara fram til þess að stefnufresti verði náð.

Þegar sá sem annast birtingu hefur gengið úr skugga um að samrit sé samhljóða frumriti stefnu setur hann samrit í umslagið og lokar því. Stefnandi skal einnig láta af hendi umslag merkt sjálfum sér og heiti máls undir frumrit stefnu.

Þeim sem annast birtingu er rétt að áskilja fyrirframgreiðslu kostnaðar af henni úr hendi stefnanda.

Nú kemur í ljós að stefnda sé ekki lengur að finna á þeim stað sem er getið í stefnu, og skal þá sá sem annast birtingu leita vitneskju um annan stað til birtingar eftir því sem kostur er. Verði ekki uppvíst um annan stað eða bresti þann, sem annast birtingu, heimild til birtingar þar skal stefnan þegar endursend stefnanda með boðum um vitneskju sem var aflað.

3   Vanhæfi

Sá er vanhæfur til að birta stefnu sem er aðili að máli, maki aðila eða skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða annan lið til hliðar.

4   Hvenær birta má stefnu

Stefnubirting skal fara fram á virkum degi frá lokum áttundu stundar til loka tuttugustu og annarrar stundar ( þ.e. á tímabilinu milli kl. 9:00 að morgni til kl. 22:00 að kvöldi, mándag til laugardag.  Þegar rætt er um virka daga sýnist eðlilegt að miða við aðra daga en þá sem taldir eru upp í 6. gr. laga nr. 88/1971 um 40 stunda vinnuviku.  Birting má þó fara fram á öðrum degi eða tíma ef það er nauðsynlegt til þess að stefnufrestur náist.

5   Fyrir hverjum skal birt:

5 A  Einstaklingar

Stefna skal að jafnaði birt fyrir stefnda sjálfum á skráðu lögheimili hans eða þar sem hann hefur fasta búsetu, dvalarstað eða vinnustað. Birting er þó alltaf gild þótt hún fari fram á öðrum stað ef birt er fyrir stefnda sjálfum.

Birting er einnig lögmæt þótt hún fari ekki fram skv. framansögðu ef:

a. birt er á skráðu lögheimili stefnda fyrir heimilismanni hans; sé heimilismanns ekki kostur má birta fyrir þeim sem dvelst á skráðu lögheimili stefnda, en sé ekki um neinn slíkan heldur að ræða má birta fyrir þeim sem hittist þar fyrir,

b. birt er á öðrum stað en skráðu lögheimili stefnda fyrir heimilismanni hans sem tjáir hann eiga þar fasta búsetu eða dvalarstað,

c. birt er á vinnustað stefnda fyrir vinnuveitanda hans eða nánasta yfirmanni eða samverkamanni.

5 B  Lögaðilar t.d. félög, stofnanir, sveitarfélög o.s.frv.

Nú er félagi stefnt, og má þá birting alltaf fara fram á stjórnarstöð þess þótt fyrirsvarsmaður hafi þar ekki fastan vinnustað, en þá skal að jafnaði birta fyrir æðsta starfsmanni þess sem verður náð til. Eins má fara að þegar öðrum lögaðila er stefnt, svo sem firma, samtökum, stofnun, ríkinu, stjórnvaldi eða sveitarfélagi.

6   Skyldur þess sem stefna er birt fyrir

1. Þeim sem hittist fyrir þegar birta á stefnu er skylt að greina frá nafni sínu og öðrum atriðum sem lögmæti birtingar getur oltið á.

2. Sá sem annast birtingu skal afhenda þeim sem er birt fyrir samrit stefnu og vekja athygli hans á því hver athöfn sé að fara fram. Ef birt er fyrir öðrum en stefnda skal honum bent á skyldur sínar skv. 3. tl. hér á eftir.

3. Ef stefna er birt fyrir öðrum en stefnda ber þeim manni að viðlagðri sekt að koma samriti stefnu í hendur stefnda, en sé þess ekki kostur þá í hendur þess sem má telja líklegastan til að koma samriti til skila í tæka tíð.
 
7   Vottorð um stefnubirtingu

Að lokinni stefnubirtingu skal sá sem annast hana gefa út dagsett og undirritað vottorð um birtinguna þar sem eftirfarandi kemur fram:

a. hvar birting fór fram og eftir atvikum hvort hermt var að þar sé skráð lögheimili stefnda, fastur búsetustaður, dvalarstaður eða vinnustaður,

b. fyrir hverjum var birt, en sé um annan en stefnda að ræða skal tiltekið hver tengsl voru sögð standa milli þeirra þannig að ráða megi um lögmæti birtingar,

c. hvenær birting fór nákvæmlega fram,

d. starfsheiti þess sem annast birtingu.

2. Birtingarvottorð skal fært á frumrit stefnu eða blað sem er fest við það. Frumritið skal síðan afhent eða sent stefnanda.


8   Þýðing vottorðs um stefnubirtingu

Efni birtingarvottorðs telst rétt þar til það gagnstæða sannast.




Listi yfir stefnuvotta eftir umdæmum



Merki Sýslumanna

Útlit síðu: