Sanngirnisbætur

Sanngirnisbætur

Dómsmála- og mannréttindaráðherra hefur falið sýslumanninum á Siglufirði að annast þau verkefni sem sýslumanni eru falin samkvæmt lögum nr. 47/2010 um sanngirnisbætur, vegna bóta til þeirra sem sættu illri meðferð við vistun á stofnunum eða heimilum á vegum ríkisins.

Um er að ræða eftirtalin heimili eða stofnanir:

 

a)   

vistheimilið Breiðavík 
b) Heyrnleysingjaskólinn 
c)  vistheimilið Kumbaravogur 
d) vistheimilið Reykjahlíð
e) skólaheimilið Bjarg 
f)  vistheimilið Silungapollur
g)  heimavistarskólinn Jaðar
h) Upptökuheimili ríkisins
i)   Unglingaheimili ríkisins

 

Rannsóknarnefnd samkvæmt lögum nr. 26/2007 hefur kannað starfsemi heimilanna á tilteknu tímabili og skilað skýrslum um hana, þó að undanskildum tveimur síðustu heimilunum en skýrslum vegna þeirra verður skilað í nóvember 2011.

Bætur eru skattfrjálsar og munu ekki skerða aðrar greiðslur eins og t.d. úr lífeyrissjóðum eða almannatryggingum.

Frestur til að lýsa kröfu vegna vistunar á vistheimilinu Silungapolli er til 22. janúar 2012. Verði kröfu ekki lýst fyrir lok þess dags, fellur hún niður.

Nú er hafin innköllun á bótakröfum frá þeim sem voru vistaðir á heimavistarskólanum að Jaðri. Auglýsing þess efnis birtist í Fréttablaðinu 21. janúar 2012. Frestur til að lýsa kröfu er til 20. apríl 2012. 

Bent er á að unnt er að leita aðstoðar tengiliðar vegna vistheimila við framsetningu og skil á bótakröfu. Aðstoð tengiliðar er að kostnaðarlausu. Skrifstofa tengiliðar er að Hverfisgötu 4a-6a, 3. hæð, 101 Reykjavík.  Sími tengiliðar er 545 9045.og netfang tengiliðar er tengilidur@tengilidur.is

  

UMSÓKNAREYÐUBLAÐ - ásamt leiðbeinginum um útfyllingu. Unnt er að skila umsóknum í rafrænu formi 

 

Skýrslur nefndarinnar má sjá hér:

 


 

Almennt um sanngirnisbætur

 

Skilyrði bótagreiðslu

Skilyrði fyrir greiðslu bóta eru að viðkomandi hafi verið vistmaður á einu af þeim heimilum sem talin eru upp hér að ofan á því tímabili sem athugun rannsóknarnefndar nær yfir og hafi sætt illri meðferð eða ofbeldi sem leiddi til varanlegs skaða.

 

Tengiliður

Tengiliður mun aðstoða þá sem hafa dvalið á framangreindum stofnunum og telja sig eiga rétt á bótum. Starf tengiliðar felst í því að aðstoða umsækjendur um bætur við að setja fram kröfur sínar og leita eftir öðrum þeim úrræðum sem hið opinbera getur veitt til endurhæfingar og menntunar.

Guðrún Ögmundsdóttir er tengiliður. Sjá fréttatilkynningu þessa efnis hér.

Skrifstofa tengiliðar er í Tollhúsinu, Tryggvagötu 19, 101 Reykjavík.  Síminn hjá tengilið er 545 9045.

Vefur tengiliðar: www.tengilidur.is

  

Innköllun krafna

Sýslumaður gefur út innköllun krafna vegna eins eða fleiri heimila í einu. Það er gert með auglýsingu. Verða auglýsingar birtar tvívegis í dagblöðum og á netinu með 14 daga millibili og verður skorað á alla þá sem voru vistmenn á viðkomandi heimili á tilgreindum tíma og telja sig hafa orðið fyrir illri meðferð eða ofbeldi á meðan á dvölinni stóð, að setja fram kröfu um bætur til sýslumanns. Viðkomandi getur óskað aðstoðar tengiliðar við framsetningu kröfunnar.

 

Framsetning krafna /eyðublað

Á eyðublaði er hægt að setja fram kröfur. Eyðublaðið er einfalt í sniðum og það þarf ekki sérþekkingu til að fylla það út og setja fram kröfur. Eyðublaðið er hægt að fylla út í tölvunni, prenta það út og senda í pósti.  Hægt er að skila umsókn rafrænt. Til að það sé unnt þarf veflykill ríkisskattstjóra að vera fyrir hendi. Samhliða er annað eyðublað þar sem sá sem lýsir kröfu getur veitt sýslumanni heimild til að afla gagna sem flýtt geta fyrir og einfaldað meðferð málsins. Þar er aðallega um að ræða gögn sem varðveitt eru hjá vistheimilanefnd, en einnig önnur gögn sem skipt geta máli.  Heimildina þarf að prenta út, undirrita og senda í pósti, eða afhenda tengilið.

  

Sáttaboð sýslumanns

Þegar innköllunarfresti er lokið fer sýslumaður yfir kröfurnar og tekur afstöðu til þeirra. Kröfum sem hann telur ekki á rökum reistar skal hafnað með rökstuddu bréfi. Telji sýslumaður grundvöll til bótagreiðslu, skal hann gera viðkomandi sáttaboð. Hámarksbætur skv. lögunum nema kr. 6.000.000. Þær skulu taka verðbreytingum um hver áramót og er hámarkið nú kr. 6.042.845. Bætur bera ekki vexti.

 

Ef einstaklingur hefur dvalið á fleiri en einu þeirra heimila sem talin eru upp hér að framan, þarf hann að lýsa kröfum vegna hvers heimilis fyrir sig eftir því sem kallað verður eftir þeim. Verða kröfur hans afgreiddar með kröfum annarra sem á því heimili dvöldu.

 

Úrskurðarnefnd

Tjónþoli getur hafnað sáttaboði sýslumanns eða samþykkt það. Hafni hann boðinu, eða hafi kröfu hans verið hafnað, getur hann innan þriggja mánaða skotið málinu til úrskurðarnefndar. Skal nefndin yfirfara kröfuna og öll gögn með ítarlegum hætti og kveða upp úrskurð. Er tjónþola heimilt að ráða sér lögmann til aðstoðar til að reka mál fyrir nefndinni og mun ríkissjóður greiða kostnað sem af því hlýst, en þó eigi hærri en kr. 150.000.  Úrskurður nefndarinnar er endanlegur og verður honum ekki hnekkt nema fyrir dómi. Í úrskurðarnefnd eiga sæti: Þorbjörg Inga Jónsdóttir hæstaréttarlögmaður sem er formaður nefndarinnar, Vigdís Erlendsdóttir sálfræðingur og Andrés Magnússon geðlæknir.

 

Greiðsla bóta

Ef fallist verður á bótakröfu, hvort sem það er á grundvelli sáttaboðs eða með úrskurði úrskurðarnefndar, verða bætur undir tveimur milljónum króna greiddar út strax. Nemi bætur hærri fjárhæð verða þær greiddar með afborgunum. Bætur bera ekki vexti en eru verðtryggðar.

 

Kröfur njóta erfðaréttar

Ef tjónþoli hefur sett fram kröfu til sýslumanns en andast áður en krafa hans er tekin til meðferðar, fer um kröfuna eftir erfðalögum. Geta þá lögerfingjar hans haldið kröfunni frammi. Lögerfingjar eru börn viðkomandi eða fjarskyldari ættingjar. Ef tjónþoli hefur látist áður en krafa var sett fram geta börn hans haldið henni frammi. Ekki þarf að greiða erfðafjárskatt af sanngirnisbotum í þeim tilvikum, en ef tjónþoli andast áður en hann hefur fengið allar greiðslur, má telja líklegt að eftirstöðvarnar verði hluti af dánarbúi sem skipta ber eftir reglum erfðalaga og verði þá erfðafjárskattskyldar.

 

Nánari upplýsingar veita Halldór eða Ásdís í síma 460 3900 á milli kl.13.00 og kl. 15.00 virka daga. Einnig má senda fyrirspurnir á netfangið halldor@syslumenn.is.

 

 Uppfært 07.07.2010


Þetta vefsvæði byggir á Eplica