Önnur verkefni

Sérstök verkefni sýslumanna

Verkefni sem færð hafa verið til einstakra embætta sýslumanna eru sem hér segir (embættin eru talin réttsælis hringinn í kring um landið) :

1) Sýslumaðurinn í Reykajvík annast leyfisveitingar fyrir ættleiðingar, sbr. reglugerð nr. 1264/2011 um veitingu leyfa til ættleiðingar.

2) Sýslumaðurinn í Stykkishólmi annst skráningu kaupmála fyri landið allt, sbr. reglugerð nr. 1126/2006 um vistun allsherjarskrár um kaupmála.

3) Sýslumaðurinn í Bolungarvík annast:
A)  Álagningu og innheimtu vanrækslugjalds af ökutækjum sem ekki hafa verið færð til skoðunar, sbr. reglugerð nr. 8/2009 um skoðun ökutækja.  Sjá hér:
B)  Umsjón með vef sýslumanna, sbr. samning embættisins og dómsmálaráðuneytisins, dags. 10. janúar 2008.   

3) Sýslumaðurinn á Hólmavík annast löggildingu löggiltra skjalaþýðenda og dómtúlka, sbr. reglugerð nr. 1122/2006.

4) Sýslumaðurinn á Blönduósi annast rekstur Innheimtumiðstöðvar sekta og sakarkostnaðar. Sjá vef innheimtumiðstöðvarinnar hér

5) Sýslumaðurinn á Sauðárkróki annast framkvæmd laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, sbr. reglugerð nr. 1125/2006 um framkvæmd laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá.  Sjá nánar um  
skipulagsskrár og staðfestingu þeirra
hér:

6) Sýslumaðurinn á Siglufirði fer með málefni bótanefndar skv. lögum nr. 69/1995. Sjá nánar um nefndina hér.

7) Sýslumaðurinn í Vík annast:
A) útgáfu og ritstjórn Lögbirtingablaðsins, sbr.
reglugerð nr. 1126/2006 um breytingu á reglugerð nr. 603/2005 um útgáfu Lögbirtingablaðs.  Sjá nánar um útgáfuna hér
B)  Leyfisveitingar til þeirra sem hyggjast starfrækja útfararþjónustu,
sbr. reglugerð nr. 1127/2006 um  veitingu leyfa til útfararþjónustu. 

8) Sýslumaðurinn á Hvolsvelli annast veitingu happdrættisleyfa, sbr. reglugerð nr. 1124/2006 um veitingu happdrættisleyfa.

9) Sýslumaðurinn í Hafnarfirði annast löggilding fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala, sbr. reglugerð nr. 1123/2003 (2006) um löggildingu fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala. 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica