Veitingaleyfi
Veitingaleyfi (rekstrarleyfi) skv. 4. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald:
a Flokkur I 24.500 kr.
b Flokkur II 161.000 kr.
c Flokkur III 208.500 kr.
Heimild: a, b og c liðir 21. tl. 11. gr. laga nr. 88/1991 um aukatekjur ríkissjóðs, sbr. VIII. kafla laga nr. 130/2009 um ráðstafanir í skattamálum (virðisaukaskattur o.fl.).
.
Endurnýjun leyfa skv. ofanskráðu:
a. skv. a lið 7.100 kr.
b. skv. b - c lið 64.500 kr.
Heimild: a og c liðir 24. tl. 11. gr. laga nr. 88/1991 um aukatekjur ríkissjóðs, sbr. VIII. kafla laga nr. 130/2009 um ráðstafanir í skattamálum (virðisaukaskattur o.fl.).
Samkvæmt 4. mgr. 21. gr. reglugerðar nr. 585/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald skal gjald fyrir leyfisbréf, sem innheimt er samkvæmt lögum um aukatekjur ríkissjóðs, greitt þegar umsókn er lögð inn.
Tekið skal fram að skv. bréfi dómsmálaráðuneytisins til leyfisveitenda frá 23. maí 2008 er það metið svo að einungis beri að greiða fyrir eitt leyfi ef sótt er um leyfi til að starfrækja gististað með veitingaaðstöðu þar sem áfengi er veitt, þ.e. fyrir gististað í flokki V. Veitingastaðir í flokki III séu þannig innan marka gististaða í flokki V hvað gjaldtöku varðar séu þeir reknir á gististað í flokki V.
Uppfært 24.02.2011.


