Staðfesting skipulagsskráa
Fyrir staðfestingu á skipulagsskrá samkvæmt lögum nr. 19/1988, um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, skal greiða 7.500 kr.
Þeir sem fara fram á staðfestingu dómsmálaráðuneytisins á skipulagsskrá skulu endurgreiða ráðuneytinu kostnað við birtingu skipulagsskráar í B-deild Stjórnartíðinda.
Heimild: 1. mgr. 18. gr. laga nr. 88/1991 um aukatekjur ríkissjóðs .
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki annast framkvæmd laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, sbr. reglugerð nr. 1125/2006 um framkvæmd laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá.
Sjá nánar um skipulagsskrár og staðfestingu þeirra hér:
Uppfært 5.janúar 2010


