Ökuskírteini
1) Fyrir ökuskírteini (fullnaðarskírteini) fyrir flokkana A, B, BE, C, CE, D og DE og til farþegaflutninga í atvinnuskyni 5.900 kr.
2) Fyrir bráðabirgðaökuskírteini og ökuskírteini fyrir flokkana M og T 3.300 kr.
3) Fyrir ökuskírteini 65 ára og eldri 1.650 kr.
Heimild: 28. - 30. tl. 14. gr. laga nr. 88/1991 um aukatekjur ríkissjóðs, sbr. stafliðir v, w og x í 33. gr. laga nr. 130/2009 um ráðstafanir í skattamálum (virðisaukaskattur o.fl.).
Sjá um einstaka flokka ökuréttinda skv. ofanskráðu hér á vef Umferðarstofu, www.us.is/.
Tekið skal fram að sama gjald er fyrir samrit eða endurnýjun ökuskírteins innan sama flokks. Þannig eru t.d. greiddar 5.900 kr. fyrir endunýjun eða samrit ökuskírteinis skv. tölulið 1), 3.300 kr. fyrir flokk 2) o.s.frv.
Fjallað er um útgáfu ökuskírteina á vefnum hér.
Uppfært 19.01.2012


