Firmaskrá

Fyrir skráningu firma eins manns skal greiða 66.500 kr.

Fyrir skráningu firma tveggja manna eða fleiri
(sameignarfélag , samlagsfélag) skal greiða      83.000 kr.

 

Aukatilkynningar og skráning breytinga                   1.650 kr.

 

Að auki ber að greiða vegna auglýsingar í Lögbirtingablaði  1.000 kr.


Heimild:  4., 5. og 8. tl. 13. gr. laga nr. 88/1991 um aukatekjur ríkissjóðs. 

 

Stimpilgjald af félagssamningum:

 Af félagssamningum félaga með ótakmarkaðri ábyrgð, þ. e.  samninga um sameignar- og samlagsfélög, ber að greiða 100 kr. ef ekkert er getið um framlagt stofnfé, annars er stimpilgjaldið 2% af framlögðu stofnfé.  

Leggi félagi fram persónulega vinnu til félagsins, auk fjárframlags eða í stað þess, skal vinnan metin til samræmis við framlagt fé annarra félaga.  Aldrei skal vinnuframlag þó metið lægra en fjárframlag þess félaga sem minnst fé leggur fram til félagsins.  Framsöl á réttindum í félögum, sem falla undir 22. og 23. gr. laga nr. 36/1978 um stimpilgjald eru stimpilfjráls 

Heimild:  23. gr. laga um stimpilgjald nr. 36/1978.    


- - - - -

Þess má geta að skráning firma hjá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra kostar kr. 5.000 og úthlutar hún firmanu kennitölu.

Heimild:  1. tl. 2. gr. reglugerðar nr. 162/2006 um gjaldtöku fyrirtækjaskrár, hlutafélagaskrár og samvinnufélagaskrár með breytingu nr. 455/2007.

 

.

Sjá eyðublað með beiðni um skráningu hér á vef ríkisskattstjóra, www.rsk.is

 

Uppfært 5.janúar 2010

 

 

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica