Þinglýsing skjala
Þinglýsing felur í sér opinbera skráningu réttinda yfir tilteknum eignum til þess að þau njóti réttarverndar gagnvart þriðja manni.
Þinglýsing fer þannig fram að meginatriði skjals sem þinglýsa á á tiltekna eign eru skráð í sérstaka tölvufærða skrá sem nefnd hefur verið Fasteignaskrá Íslands. Þegar skjal er móttekið til þinglýsingar eru eintök þess árituð um móttökudag, efni þess í framhaldinu fært í skrána á þá eign sem það varðar og það að því búnu áritað eða stimplað um þinglýsinguna.
Eignir sem nú eru skráðar í fasteignaskrá Þjóðskrár Íslands eru þessar :
Fasteignir og fasteignaréttindi
Skip yfir fimm brúttótonn
Flugvélar
Ökutæki
Lausafé, sem skráð er á kennitölu rétthafa þess.
Um þinglýsingu gilda lög nr. 39/1978 þinglýsingarlög með síðari breytingum.
Skjöl sem á að þinglýsa skal afhenda í tvíriti, frumriti og samriti eða endurriti. Það eintak, sem sýslumanni er ætlað, skal vera skráð á löggiltan skjalapappír.
Frekari umfjöllun í vinnslu
Uppfært 29.04.2010.


