Aflýsing
Hvað er aflýsing?
Þegar réttindum þeim eða réttarsambandi því, sem stofnað er til með skjali er lokið, er rétt að aflýsa skjalinu úr þinglýsingabókum.
Það er gert annað hvort með áritun á frumrit skjals þess þar sem til réttindanna er stofnað, t.d. skuldabréf sem þá er sent þinglýsingar-stjóra, eða með sérstakri yfirlýsingu sem færð er í þinglýsingabók. Aflýsingin er færð í þinglýsingabók og koma þær upplýsingar sem færðar voru inn við þinglýsingu ekki lengur fram á þinglýsingavottorði.
Það er skilyrði fyrir aflýsingu að þinglýsingarstjóri fái í hendur frumrit skjals sem aflýsa á áritað af rétthafa.kjöl sem þinglýst er.
Ef frumrit skjals er glatað þarf að gera sérstakar ráðstafnir svo unnt sé að aflýsa skjali.
Ekki ber að greiða fyrir aflýsingu skjals nema skjali sé aflýst með yfirlýsingu á nýju skjali sem þinglýst er. Ber þá að greiða fyrir þinglýsingu yfirlýsingarinnar.
Uppfært 26.02.2011


