Þinglýsingar

Hvað er þinglýsing?

Þinglýsing er opinber skráning skjala sem gegnir því hlutverki að afla réttindum þeim sem skjölin taka til, verndar gagnvart þriðja manni.


Hvað er aflýsing?
Þegar réttarsambandi því, sem stofnað var til með skjali er lokið, skal aflýsa skjalinu úr þinglýsingabókum. Aflýsingin er færð í þinglýsingabók og kemur þinglýsing sú sem aflýst er ekki lengur fram á þinglýsingavottorði. Það er skilyrði fyrir aflýsingu að þinglýsingarstjóri fái í hendur frumrit skjals sem aflýsa á áritað af rétthafa.

Þinglýsingarumdæmi

Skjöl sem varða fasteignir ber að þinglýsa í því umdæmi sem fasteignin er.
Skjöl sem varða skip ber að þinglýsa í umdæmi þar sem skip er skráð.                                                                                                            Skjöl sem varða skráð ökutæki ber að þinglýsa í umdæmi þar sem skráður eigandi á lögheimili og sama á við um lausafé sem ekki er skráð í ökutækja- eða skipaskrá. 
Skjöl sem varða lausafé ber að þinglýsa í umdæmi þar sem skráður eigandi lausafjárins er með lögheimil. 
Skjöl sem varða loftför ber að þinglýsa hjá sýslumanninum í Reykjavík.

 

Hvað er þinglýsingavottorð (veðbókarvottorð)?

Þinglýsingavottorð, oft í daglegu tali nefnt veðbókarvottorð, er vottorð eða staðfesting á því hvað hefur verið skráð í þinglýsingabók um tiltekna eign. Hvað varðar fasteignir kemur þar fram hverjir séu þinglýstir eigendur hennar, hvaða veðbönd og kvaðir hvíla á henni og hvort eignaskiptayfirlýsingu hefur verið þinglýst ef um fjöleignahús er að ræða. 

Þinglýsingarbækur.

Í þinglýsingarlögum er gert ráð fyrir að meginatriði úr skjali sem komið er með til þinglýsingar sé fært í þinglýsingabók. Jafnframt er gert ráð fyrir að færa megi þinglýsingarbækur í tölvutæku formi. Í langflestum umdæmum er efni yfirgnæfandi meirihluta þinglýstra skjala fært  í tölvu, sem tengist gagnabanka Fasteignamats ríkisins, jafnframt því sem skjölin er skönnuð inn (myndlesin) þegar þeim er þinglýst.  Sameiginlegur gagnabanki þinglýsingaskráningar sýslumanna, Fasteignamats ríkisins og sveitarfélaga hefur verið nefndur “Landskrá fasteigna”.


Hvernig má nálgast upplýsingar úr þinglýsingabókum?

Hjá þinglýsingarstjórum má fá þinglýsingarvottorð fyrir einstakar eignir og einnig hægt að fá ljósrit einstakra þinglýstra skjala, svo sem eignaskiptayfirlýsingum.  Nálgast má þinglýsingarvottorð um sérhverja fasteign sem færð hefur verið í Landskrá fasteigna hjá hvað embætti sýslumanns sem er.  Sama á við um ökutæki, nálgast má þinglýsingarvottorð fyrir öll skráð ökutæki hjá hvaða sýslumannsembætti sem er.  Unnið er að því að þetta verði einnig unnt með skip og lausafé. 

Hægt er að kaupa aðgang að veðbandayfirlitum hjá Fasteignamati ríkisins og hjá Lánstrausti hf.  Sá aðgangur takmarkast við þær eignir sem skráðar eru í gagnagrunni Landskrár fasteigna.

Kostnaður við þinglýsingar.

Kostnaður við þinglýsingu er sem hér segir:

Þinglýsingargjald fyrir hvert skjal sjá hér

Þinglýsingarvottorð (veðbókarvottorð) sjá hér

Stimpilgjald, sjá nánar hér 

Að jafnaði er fjárhæð stimpilgjalds miðuð 0,4% af fasteignamati fasteignar við þinglýsingu kaupsamnings eða afsals fyrir fasteign.  Fyrir skip er greitt 0,4% kaupverðs, þó aldrei lægra en áhvílandi veðskuldir.     


Lagatilvísun:

Þinglýsingalög nr. 39/1978

Reglugerð um þinglýsingar nr. 405/2008

Lög um fjöleignahús nr. 26/1994, II kafli

Lög um stimpilgjald nr. 36/1978

Lög um aukatekjur ríkissjóðs nr. 88/1991 (8, 14, og 17. gr.)

 

 

 

Uppfært 06.04.2010.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica