Sambúðarslit

Sambúðarslit þegar aðilar eiga ekki saman börn.
Ef sambúðaraðilar eiga ekki saman börn þurfa þeir ekki að leita til sýslumanns vegna sambúðarslita. Þá er nægilegt að tilkynna um breytt lögheimili til Þjóðskrár Íslands.  Má nálgast eyðublað fyrir slíka tilkynningu hér á vef stofnunarinnar, www.skra.is.

Sambúðarslit þegar aðilar eiga saman barn eða börn.
Þegar aðilar sem eiga saman börn slíta sambúð sem skráð hefur verið í þjóðskrá, er þeim skylt að ákveða hvernig fari með forsjá barns eða barna, þ.e. hvort hún verði hjá öðru foreldri eða sé sameiginleg svo og hvernig meðlagsgreiðslum með barni eða börnum skuli háttað.

Sjá nánari umfjöllun um forsjá og meðlag í köflunum forsjá og meðlag, hér á vef sýslumanna.

Fyrirtaka hjá sýslumanni.
Þegar aðilar mæta hjá sýslumanni þurfa þeir að hafa meðferðis fæðingarvottorð barns/barna og fjölskylduvottorð, en bæði þessi vottorð eru gefin út af Þjóðskrá Íslnds.   Oft er þó útprentun úr þjóðskrá látin duga en hana má nálgast hjá sýslumönnum. 

Deila um forsjá barns.
Ef foreldra greinir á um forsjá barns og þeir ná ekki sátt í málinu verður að leggja það fyrir dómstóla.

Skjal til staðfestingar á sambúðarslitum.
Ef aðilar eru sammála um hvernig forsjá barns/barna og meðlagsgreiðslum skuli háttað gefur sýslumaður út skjal til staðfestingar á sambúðarslitum.

Tilkynning til Þjóðskrár. 
Sýslumaður sendir Þjóðskrá Íslands tilkynningu um sambúðarslit, með upplýsingum um hvort foreldra fari með forsjá barns og hvar barnið eigi lögheimili. Er þá skráningu í þjóðskrá breytt til samræmis við þessar upplýsingar.

Skylda Tryggingastofnunar ríkisins til greiðslu meðlags.
Rétthafi meðlagsgreiðslna skv. skjali til staðfestu sambúðarslita getur snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og óskað eftir að stofnunin greiði honum meðlag skv. skjalinu.  Sjá umsókn um meðlag á vef Tryggingastofnunar hér. 

Rétt er að árétta að stofnunin greiðir einungis einfalt meðlag með hverju barni.  Hafi foreldrar samið um eða sýslumaður úrskurðað um viðbótarmeðlag, sem meðlagsskylt foreldri af einhverjum ástæðum greiðir ekki, verður það foreldri sem greiðslu á að fá að annast sjálft innheimtu þess.

 

 

 

Uppfært 17.03.2011

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica