Firmaskráning

Í öllum lögsagnarumdæmum á Íslandi skulu sýslumenn halda verslanaskrár, og skal í þær rita tilkynningar þær, er getur um í lögum um verslanaskrár, firmu og prókúruumboð nr. 42/1903, eða heimilað verður með öðrum lögum að setja í skrárnar.

Tilkynning til innritunar á verslanaskrá skal vera skrifleg og henni fylgja lögboðin borgun fyrir skrásetningu og auglýsingu.

Nú þykir einhverjum tilkynning, sem rituð er í verslanaskrá, vera sér skaðleg, og liggur það þá undir úrskurð dómstólanna, hvort afmá skuli tilkynninguna.

Hver sá er rekur verslun, handiðnað eða verksmiðjuiðnað skal hlýða ákvæðum laga nr. 42/1903 um nafn það, er hann notar við atvinnuna, og um undirskrift fyrir hana (firma), enda beri fyrirtækið og atvinnustarfsemi þess nöfn, sem samrýmist íslensku málkerfi að dómi skrásetjara. Ágreiningi, sem rísa kann út af nafni, má skjóta til nefndar þeirrar sem starfar samkvæmt lögum nr. 35/1953.

Firma einstaks manns skal vera fullt nafn hans, þó má skammstafa skírnarnafnið. Í firmanu má eigi vera neitt, sem bendir á félagsskap eða takmarkaða ábyrgð.

Firmu þau, er sett eru á skrá fyrir sama kaupstað eða hrepp, skal greina glöggt hvert frá öðru.

Nú er svo ákveðið í félagi með ótakmarkaðri ábyrgð, að firma verði eigi svo ritað svo gilt sé, nema fleiri en einn af félagsmönnum geri það, og skulu þeir þá undirrita nöfn sín um leið og þeir rita firmað.

Firma eins manns er eigi skylt að tilkynna frekar en sjálfur vill, nema firmanu sé valið sérstakt heiti, annað en nafn eiganda, en öll önnur firmu skal tilkynna, áður en atvinnureksturinn byrjar. Tilkynnt skal til sýslumanns í því umdæmi þar sem firmað er.

Þegar firma eins manns er tilkynnt, skal tilgreint auk firmans:

  • Fullt nafn tilkynnanda, kennitala og heimili,
  • tegund atvinnunnar,
  • sveitarfélag þar sem skrifstofa atvinnunnar (útibúsins) er.

Breytingu eða lok firma skal einnig tilkynna til sýslumanns.

Sameignarfélag

Skv. 2. gr. laga nr. 50/2007 um sameignarfélög er sameignarfélag samstarfsform sem byggist á samningi tveggja eða fleiri aðila um sameiginlega fjárhagslega starfsemi þar sem allir félagsmenn bera beina, óskipta og ótakmarkaða ábyrgð á skuldbindingum félagsins.  Sameignarfélög eru skammstöfuð sf.

Þegar firma sameignarfélags er tilkynnt, skal tilgreint auk firmans:

  • Fullt nafn allra eigenda, kennitölur og heimili,
  • tegund atvinnunnar,
  • sveitarfélag þar sem skrifstofa atvinnunnar (útibúsins) er.
  • Upplýsingar um hverjir hafa heimild til að binda félagið (prókúra)
  • Leggja þarf fram sameignarfélagssamning ef óskað er eftir því að félagið verði sjálfstæður skattaðili.

Samlagsfélag

Samlagsfélag er það félag talið, sem í eru einn eða fleiri félagsmenn, er ábyrgjast með öllum eigum sínum einn fyrir alla og allir fyrir einn skuldir félagsins (félagsmenn með ótakmarkaðri ábyrgð), og einn eða fleiri félagsmenn, er eigi ábyrgjast skuldir félagsins fram yfir það, er tillög þeirra ná eða hlutafé það, sem tilkynnt hefir verið í verslanaskrána, að þeir hafi lagt í atvinnuna. Nú eru í félaginu fleiri en einn félagsmaður með ótakmarkaðri ábyrgð, og er það þá jafnframt félag með ótakmarkaðri ábyrgð.

Um tilkynningu samlagsfélags gildir hið sama og um tilkynningu sameignarfélags.

Verslunarleyfi

Lögreglustjórar gefa ekki lengur út verslunarleyfi svo sem gert var samkvæmt lögum nr. 41/1968. Skilyrði þess að mega stunda verslun á Íslandi eru einungis þau að skrásetja í firma- eða hlutafélagaskrá eftir því sem við á verslun sem stunduð er skv. 1. gr. laga nr. 28/1998 um verslunaratvinnu.

Kostnaður

Skráning einstaklingsfyrirtækis hjá sýslumanni kostar 44.000 kr. og sameignarfélags kr. 55.000. Auk þess bætist við gjald vegna tilkynningar um skráningu einstaklingsfyrirtækisins er birta skal í Lögbirtingablaði, 1.868 kr. með virðisaukaskatti. Tilkynning um breytingu í firmaskrá kostar kr. 1.100 og kr. 1.868 vegna Lögbirtingablaðs.

Skráning firma hjá Hagstofu Íslands kostar kr. 5.000 og úthlutar hún firmanu kennitölu.

Á félagssamninga sameignar- og samlagsfélaga fellur stimpilgjald með lágmarki kr. 200, ef ekkert er getið um framlagt stofnfé, annars er stimpilgjaldið 2% af framlögðu stofnfé.

Lög og reglugerðir á þessu sviði:

Lög um verslanaskrár, firmu og prókúruumboð nr. 42/1903

Lög um verslunaratvinnu nr. 28/1998

Hlutafélagalög nr. 2/1995

Lög um sameignarfélög nr. 50/2007

Tenglar

Viðskiptaráðuneytið ( leyfisveitingar-stofnun félaga (gagnlegar upplýsingar m.a. um skatta))




Þetta vefsvæði byggir á Eplica