Önnur verkefni

Hér undir falla verkefni eins og firmaskráning, sbr. lög nr. 14/1903 um verslanaskrár, firmu og prókúruumboð

lögbókandagerðir, sbr. lög nr. 86/1989 um lögbókandagerðir,

að annast atkvæðagreiðslur utan kjöfundar, sbr. einkum lög nr. 24/2000 um kosningar til Alþingis.

Þá annast sýslumenn útgáfu iðnaðarleyfa og meistarabréfa, sbr. iðnaðarlög nr. 42/1978, svo og leyfi til að reka verslun eða umboðssölu með notuð ökutæki, sbr. lög nr. 28/1998 um verslunaratvinnu.

Sýslumenn veita leyfi til að brenna sinu, sbr. lög um sinubrennur og meðferð elds á víðavangi, nr. 6/1992 og reglugerð sama efnis nr. 157/1993.

Sýslumenn annast sáttaumleitanir í einkamálum ef aðilar samþykkja að leita til hans, sbr. lög nr. 91/991 um meðferð einkamála í héraði, 107. gr.   Sjá nánar hér

Sýslumenn skulu að undangengnum dómsúrskurði veita atbeina við öflun sönnunargagna vegna ætlaðra brota á hugverkaréttindum, sbr. lög nr. 53/2006 um öflun sönnunargagna vegna ætlaðra brota á hugverkaréttindum, III. kafli.  

 

 

                                                                                                                                                                 Uppfært 10.09.2007

 



Merki Sýslumanna

Útlit síðu: