Svipting lögræðis

Lögræðissvipting.

Hægt er að svipta mann fjárræði einu sér, sjálfræði einu sér eða hvoru tveggja.

Hvert á að beina kröfu um sviptingu?

Kröfu um sviptingu fjárræðis og/eða sjálfræðis á að beina til héraðsdóms í því umdæmi, sem sá sem svipta á,á lögheimili.

Ítarlega er fjallað um skilyrði sviptingar, hverjir geti sett fram kröfu um sviptingu, form og efni kröfunnar, málsmeðferð, málsskot, málskostnað og einnig um niðurfellingu sviptingar í 4. til 17. gr. lögræðislaga nr. 71/1997.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica