Lögráðamenn

Lögráðamenn og yfirlögráðendur:

Hverjir fara með lögráð þeirra sem eru ólögráða 

Foreldrar barns, sem ólögráða er fyrir æsku sakir, og þeir sem barni koma í foreldra stað ráða persónulegum högum þess.  Nefnast  þau lögráð forsjá og fer um hana samkvæmt ákvæðum barnalaga og lögum um vernd barna og ungmenna.

Nú er maður með dómsúrskurði sviptur sjálfræði eða fjárræði, eða hvoru tveggja, og hverfa þá lögráðin til yfirlögráðanda í því umdæmi sem hinn lögræðissvipti á lögheimili eða fastan dvalarstað.  Yfirlögráðandi skal skipa hinum lögræðissvipta lögráðamann svo fljótt sem verða má eftir að honum berst staðfest endurrit úrskurðar um lögræðissviptinguna.

 

Heimildir lögráðamanna

Lögráðamaður sjálfræðissvipts manns hefur heimild til að taka nauðsynlegar ákvarðanir um þá persónuhagi hins sjálfræðissvipta sem hann er ófær um að taka sjálfur og er hún bindandi eins og hann hafði hana sjálfur gert. 
Lögráðamaður ófjárráða manns ræður yfir fé hans, nema lög mæli um á annan veg.

 

Starfsskyldur lögráðamanns

Lögráðamaður manns, sem ófjárráða er fyrir æsku sakir, skal fyrir 1. mars ár hvert gefa yfirlögráðanda skýrslu, á eyðublaði sem hann leggur til, um helstu ákvarðanir sem teknar hafa verið á fyrra ári um fjárhald hins ófjárráða ef verðmæti eigna hans er 500.000 kr. eða þar yfir. 

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica