Lögráð barna
Hvað felur það í sér að fara með lögráð barns?
Að fara með lögráð barns felur í sér að viðkomandi ræður persónulegum högum þess. Það kallast enn fremur að fara með forsjá barns. Að fara með lögráð felur einnig í sér að viðkomandi fer með fjárhald fyrir barnið.
Hverjir fara með fjárhald barns?
Þeir sem fara með forsjá.
Þeir sem fara með forsjá barns, hvort sem það eru foreldrar eða aðrir, fara langoftast einnig með fjárhald þess. Ef þeir sem fara með forsjá barns eru tveir fara þeir sameiginlega með fjárhaldið.
Sérstaklega skipaðir fjárhaldsmenn.
Fjárhaldsmaður vegna tiltekins erindis.
Sýslumaður getur skipað barni sérstakan lögráðamann, þ.e. til að reka tiltekið erindi fyrir barnið þegar þess gerist þörf. Það skal jafnan gera þegar fastur fjárhaldsmaður hefur eigin hagsmuna að gæta við þann erindisrekstur.
Fjárhaldsmaður skipaður vegna hagsmuna barns.
Einnig getur sýslumaður við aðrar aðstæður skipað barni fjárhaldsmann þegar hagsmunir þess krefjast þess.
Fjárhaldsmaður eftir andlát forsjárforeldris.
Hafi foreldri ákveðið hver skuli að því látnu vera fjárhaldsmaður barns, er það hefur forsjá fyrir, skal skipa viðkomandi fjárhaldsmann nema annað þyki hentugra vegna hagsmuna barnsins eða mælt sé fyrir um fjárhaldið í lögum.
Fjárhaldsmaður barns getur ekki í öllum tilvikum tekið ákvarðanir um fjárhald barns. Í vissum tilfellum er nauðsynlegt að afla fyrirfram samþykkis sýslumanns svo ráðstöfunin verði gild. Nánar er fjallað um þetta atriði í kaflanum Ráðstöfun eigna hér á heimasíðunni.
Fjárhaldsmaður barns sem á eignir er nema meira en kr. 500.000 skal árlega skila skýrslu um fjárhaldið til sýslumanns. Sjá nánar um þetta í kaflanum Skýrslur lögráðamanna hér á heimasíðunni.


