Lögráðamál

Yfirlit

Um lögræði er fjallað í lögræðislögum nr. 71/1997. Samkvæmt þeim er lögræði tvenns konar, sjálfræði og fjárræði.  Sjálfráða maður ræður einn öðru en fé sínu nema lög mæli á annan veg en fjárráða maður ræður einn fé sínu, nema lög mæli á annan veg.  Menn verða lögráða, þ.e. bæði sjálfráða og fjárráða 18 ára.  Ef maður stofnar til hjúskapar fyrir 18 ára aldur er hann lögráða upp frá því.

Lögráðamenn fara með þau málefni ólögráða skjólstæðinga sem undir þá heyra.  Foreldrar barns, sem ólögráða er fyrir æsku sakir, og þeir sem barni koma í foreldra stað ráða persónulegum högum þess.  Nefnast þau lögráð forsjá og fer um hana samkvæmt ákvæðum barnalaga og lögum um vernd barna og ungmenna. 

Yfirlögráðendur (sýslumenn) hafa eftirlit með fjárhaldi lögráðamanna þeirra sem ófjárráða eru fyrir æsku sakir. Þá skipa þeir þeim sem sviptir hafa verið lögræði lögráðamenn og hafa eftirlit með störfum þeirra.  Yfirlögráðendur skipa ráðsmenn og hafa eftirlit með störfum þeirra.  Loks annast yfirlögráðendur nokkur önnur verkefni sem þeim eru falin í lögræðislögum og öðrum lögum. 

Ráðsmenn eru skipaðir af yfirlögráðanda til að fara með umsjón tilterkinna eigna eða fjármuna skjólstæðings síns, sem á óhægt um vik með að sjá um fjármál sín vegna veikinda eða fötlunar.  Ráðsmaður fer með sömu heimildir fyrir þeim eignum sem honum hefur verið falin umsjón með og skjólstæðingur hans hafði fyrir skipun hans, nema annað leiði af lögum.

 

 

 

 



Merki Sýslumanna

Útlit síðu: