Staðfesting erfðaskrár

Staðfesting erfðaskráa.

Samkvæmt 40. gr. erfðalaga nr. 8/1962 skal erfðaskrá vera skrifleg, og skal arfleifandi, þ.e. sá sem gerir erfðaskrá, undirrita hana eða kannast við undirritun sína fyrir notario publico (lögbókanda / sýslumanni) eða tveimur vottum.

Erfðaskrá er jafngild hvort sem hún er undirrituð og skráð hjá sýslumanni eða ekki. Ákveðið öryggi felst þó í því að skrá hana hjá sýslumanni en þá er tryggt að rétt sé staðið að gerð hennar og efni hennar varðveitt á öruggum stað.

Efni erfðaskrár ber að færa í notarialabók og einnig er eintak hennar að jafnaði varðveitt hjá sýslumanni.

Skylt er sýslumanni að leiðbeina ólöglærðum um form og efni erfðaskrá sem þeir kjósa að gefa.

-

Um gjald fyrir lögbókandavottorð á erfðaskrár, sjá hér 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica