Nauðungarsölur o.fl. fullnustugerðir
Fullnustugerð hefur verið skilgreind sem valdbeitingarathöfn, sem ríkið grípur til í því skyni, að þvinga fram efndir á skyldu manns eða persónu að lögum sem hlutaðeigandi vill eða getur ekki orðið við af fúsum og frjálsum vilja.
Fullnustugerðir annast sýslumenn og löglærðir fulltrúar þeirra.
Flokkar fullnustugerða: Fullnustugerðir má í aðalatriðum flokka í þrjá flokka, þ.e. aðfarargerðir, bráðabirðgagerðir og nauðungarsölur. Nánar er flokkunin sem hér segir:
I.
1 Aðfarargerðir, sbr. lög nr. 90/1989 um aðför o.fl., en þær flokkast í tvo meginflokka:
A) Aðför til fullnustu kröfu um greiðslu peninga. Nefnist hún fjárám.
B) Aðför til fullnustu kröfu um annað en greiðslu peninga. Þeim má skipta í fjóra flokka
1) Útburðargerð
2) Innsetning
3) Skuldbinding skv. löggerning
4) Að framfylgja banni skv. aðfararheimild
II.
2 Bráðabirgðagerðir, sbr. lög. nr. 31/1990 um kyrrsetningu, lögbann o.fl. Þær flokkast í:
1) Kyrrsetningu,
2) Lögbann
3) Löggeymslu.
III.
3 Nauðungarsölur, sbr. lög nr.90/1991 um nauðungarsölu
