Sameignarfélög
Skv. 2. gr. laga nr. 50/2007 um sameignarfélög er sameignarfélag samstarfsform sem byggist á samningi tveggja eða fleiri aðila um sameiginlega fjárhagslega starfsemi þar sem allir félagsmenn bera beina, óskipta og ótakmarkaða ábyrgð á skuldbindingum félagsins. Sameignarfélög eru skammstöfuð sf.
Þegar firma sameignarfélags er tilkynnt, skal tilgreint auk firmans:
- Fullt nafn allra eigenda, kennitölur og heimili,
- tegund atvinnunnar,
- sveitarfélag þar sem skrifstofa atvinnunnar (útibúsins) er.
- Upplýsingar um hverjir hafa heimild til að binda félagið (prókúra)
- Leggja þarf fram sameignarfélagssamning ef óskað er eftir því að félagið verði sjálfstæður skattaðili.
Við skráningu sameignarfélags hjá sýslumanni skal huga að eftirfarandi varðandi skattlagningu sameignarfélaga:
Sameignar- og samlagsfélög geta verið sjálfstæðir skattaðilar (þ.e. telja fram til skatts sem sjálfstæð félög) eða ósjálfstæðir skattaðilar (þ.e. færa niðurstöður af skattframtali þeirra til félagsaðila í samræmi við eignarhlutfall eigenda). Sjá í þessu sambandi 3. tölulið 2. gr. um skattskyldu lögaðila í lögum nr. 90/2003., um tekjuskatt:
„Samlagsfélögum og sameignarfélögum með ótakmarkaðri ábyrgð félagsaðila, enda sé félagið skráð í firmaskrá hér á landi, þess óskað við skráningu að félagið sé sjálfstæður skattaðili og við skráningu afhentur félagssamningur þar sem getið sé eignarhlutfalla eigenda, innborgaðs stofnfjár svo og hvernig félagsslitum skuli háttað. Senda skal ríkisskattstjóra vottorð um skráningu og staðfest eftirrit af félagssamningi með fyrsta skattframtali þessara félaga. Hjón ein sér eða með ófjárráða börnum sínum geta ekki myndað samlagsfélag eða sameignarfélag er sé sjálfstæður skattaðili.“
Félag sem sækir ekki um að vera sjálfstæður skattaðili við skráningu eða uppfyllir ekki skilyrði til sjálfstæðrar skattaðildar getur ekki orðið það síðar sbr. t.d. úrskurð ríkisskattanefndar nr. 419/1988 og yfirskattanefndar nr. 231/2001, nr. 401/2006. Einnig dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá 11. febrúar 2011 í máli nr. E-31/2010.
- Stofnfé og skipting – Í sameignarfélagssamningi þarf að koma fram hvert sé innborgað stofnfé og hvernig það skiptist.
- Sjálfstæður skattaðili eða ekki. – Ganga þarf úr skugga um hver sé vilji eigenda þessara félaga. Ef félag á að vera sjálfstæður skattaðili þá þarf að taka það sérstaklega fram í tilkynningu til sýslumanns og í sameignarfélagssamningnum.
Þá geta hjón ein sér eða með ófjárráða börnum sínum ekki myndað samlagsfélag eða sameignarfélag sem er sjálfstæður skattaðili.
- Sameignar/samlagsfélagssamningur - við skráningu þessara félaga hjá sýslumanni í firmaskrá sé alltaf lagður fram fullnægjandi félagsamningur. Sjá í þessu sambandi úrskurð ríkisskattanefndar nr. 419/1988.
- (Samlagsfélagssamningur - Í félagssamningi samlagsfélags þarf að koma fram hvernig skipting ábyrgðar félagsaðila er í félaginu. Í a. lið 33. gr. laga nr. 42/1903, um verslunarskrár, firmu og prókúruumboð, en þar er skilgreining á samlagsfélagi svohljóðandi:
„Samlagsfélag er það félag talið, sem í eru einn eða fleiri félagsmenn, er ábyrgjast með öllum eigum sínum einn fyrir alla og allir fyrir einn skuldir félagsins (félagsmenn með ótakmarkaðri ábyrgð), og einn eða fleiri félagsmenn, er eigi ábyrgjast skuldir félagsins fram yfir það, er tillög þeirra ná eða hlutafé það, sem tilkynnt hefir verið í verslanaskrána, að þeir hafi lagt í atvinnuna. Nú eru í félaginu fleiri en einn félagsmaður með ótakmarkaðri ábyrgð, og er það þá jafnframt félag með ótakmarkaðri ábyrgð.“ )
Hér á vef fyrirtækjasviðs ríkisskattstjóra, ww.rsk.is, má nálgast umsókn til útfyllingar þegar sótt er um kennitölu fyrir sameignarfélag. Áður en sótt er um kennitölu þarf að liggja fyrir staðfesting á skáningu félagsins frá viðkomandi sýslumannsembætti ásamt afriti af sameignarfélagssamningi.
Uppfært 30.03.2011.


