Einstaklingsfyrirtæki
Firma eins manns er eigi skylt að tilkynna frekar en sjálfur vill, nema firmanu sé valið sérstakt heiti, annað en nafn eiganda, en öll önnur firmu skal tilkynna, áður en atvinnureksturinn byrjar. Tilkynnt skal til sýslumanns í því umdæmi þar sem firmað er. Þegar firma eins manns er tilkynnt, skal tilgreint auk firmans:
- Fullt nafn tilkynnanda, kennitala og heimili,
- tegund atvinnunnar,
- sveitarfélag þar sem skrifstofa atvinnunnar (útibúsins) er.
- Breytingu eða lok firma skal einnig tilkynna til sýslumanns.
Skráning einstaklingsfirma í firmaskrá veitir einnig heimild til að stunda verslun, sbr. 4. gr. laga 28/1998 um verslunaratvinnu.
Einstaklingsfirmu geta ekki verið sjálfstæðir skattaðilar og fá ekki eigin kennitölu.
Uppf. 06.09.2012.
