Firmaskrá
Efni í vinnslu.
Í öllum lögsagnarumdæmum á Íslandi skulu sýslumenn halda verslanaskrár, og skal í þær rita tilkynningar þær, er getur um í lögum nr. 42/1903 um verslanaskrár, firmu og prókúruumboð, eða heimilað verður með öðrum lögum að setja í skrárnar.
Tilkynning til innritunar á verslanaskrá skal vera skrifleg og henni fylgja lögboðin borgun fyrir skrásetningu og auglýsingu.
Nú þykir einhverjum tilkynning, sem rituð er í verslanaskrá, vera sér skaðleg, og liggur það þá undir úrskurð dómstólanna, hvort afmá skuli tilkynninguna. Hver sá er rekur verslun, handiðnað eða verksmiðjuiðnað skal hlýða ákvæðum laga nr. 42/1903 um nafn það, er hann notar við atvinnuna, og um undirskrift fyrir hana (firma), enda beri fyrirtækið og atvinnustarfsemi þess nöfn, sem samrýmist íslensku málkerfi að dómi skrásetjara. Ágreiningi, sem rísa kann út af nafni, má skjóta til nefndar þeirrar sem starfar samkvæmt lögum nr. 35/1953. Firma einstaks manns skal vera fullt nafn hans, þó má skammstafa skírnarnafnið. Í firmanu má eigi vera neitt, sem bendir á félagsskap eða takmarkaða ábyrgð. Firmu þau, er sett eru á skrá fyrir sama kaupstað eða hrepp, skal greina glöggt hvert frá öðru. Nú er svo ákveðið í félagi með ótakmarkaðri ábyrgð, að firma verði eigi svo ritað svo gilt sé, nema fleiri en einn af félagsmönnum geri það, og skulu þeir þá undirrita nöfn sín um leið og þeir rita firmað.
Firma eins manns er eigi skylt að tilkynna frekar en sjálfur vill, nema firmanu sé valið sérstakt heiti, annað en nafn eiganda, en öll önnur firmu skal tilkynna, áður en atvinnureksturinn byrjar. Tilkynnt skal til sýslumanns í því umdæmi þar sem firmað er. Þegar firma eins manns er tilkynnt, skal tilgreint auk firmans:
Fullt nafn tilkynnanda, kennitala og heimili,
tegund atvinnunnar,
sveitarfélag þar sem skrifstofa atvinnunnar (útibúsins) er.
Breytingu eða lok firma skal einnig tilkynna til sýslumanns.
Hér má nálgast eyðublað sem hefur að geyma tilkynningu til firmaskrár.
