Tilkynning andláts
Hverjum skal tilkynna um andlát?
Andlát skal tilkynna til sýslumanns í því umdæmi sem hinn látni átti lögheimili í þegar hann lést. Við tilkynninguna skal eftir föngum fylla út eyðublað sem nefnist dánarskrá þar sem kallað er eftir upplýsingum um erfingja hins látna, eignir og skuldir o.fl. Sjá eyðublaðið hér Dánarskrá, eyðublað.
Hver tilkynnir andlát?
Það eru lögerfingjar hins látna, þ.e. maki, börn, foreldrar, afi og amma eða niðjar þeirra nánustu aðstandendur hins látna sem tilkynna um andlátið eða þeir sem taka arf eftir hann samkvæmt erfðaskrá.
Dánarvottorð.
Þegar andlát er tilkynnt þarf að hafa meðferðis dánarvottorð, annað hvort frá lækni á sjúkrahúsi þar sem hinn látni lést eða frá lækni sem annaðist hinn látna.
Vottorð um tilkynningu andláts.
Sýslumaður gefur út vottorð um að andlát hafi verið tilkynnt og er vottorðið afhent þeim sem sér um útför hins látna. Útför má ekki fara fram nema vottorð sýslumanns um tilkynningu andláts liggi fyrir. Sjá eyðublað hér að neðan.
Meðferð eigna eftir andlát.
Sá sýslumaður, sem skipta á dánarbúi, fer með forræði búsins frá andláti og þar til aðrar ráðstafanir eru gerðar. Aðstandendum hins látna eða erfingjum er því óheimilt að ráðstafa eignum hans eða taka út af bankareikningum búsins nema með sérstakri heimild sýslumanns.
Útfararkostnaður.
Sýslumaður getur heimilað að teknir séu fjármunir af bankainnstæðum hins látna til þess að greiða útfararkostnað. Sá sem fær slíka úttektarheimild verður að gera sýslumanni grein fyrir því hvernig fjármununum er ráðstafað.
Kostnaður:
Ekki er tekið gjald fyrir útgáfu staðfestingar sýslumanns á móttöku dánarvottorðs.
Löggjöf sem vísað er til:
Lög um skipti á dánarbúum o.fl. nr. 20/1991
Eyðublöð o.fl.
Leiðbeiningar um útfyllingu á eyðublaði fyrir tilkynningu andláts


