Seta í óskiptu búi
Leyfi til setu í óskiptu búi.
Ef hinn látni hefur verið í hjónabandi getur eftirlifandi maki óskað eftir leyfi til setu í óskiptu búi. Hann snýr sér til viðkomandi sýslumanns innan fjögurra mánaða frá andláti og óskar eftir slíku leyfi. Eyðublöð til útfyllingar liggja frammi hjá sýslumönnum. Einnig má nálgast það neðst á þessari síðu.
Hvenær er hægt að óska eftir leyfi til setu í óskiptu búi? Meginreglur.
A. Hinn látni og eftirlifandi maki áttu saman börn.
Ef hinn látni og eftirlifandi maki áttu saman börn á maki rétt á að sitja í óskiptu búi með sameiginlegum börnum (niðjum).
Þetta á ekki við hafi hinn látni mælt svo fyrir í erfðaskrá að skipti skuli fara fram.
B. Hinn látni átti börn, sem ekki eru börn eftirlifandi maka.
B 1 Erfðaskrá.
Hafi hinn látni látið eftir sig erfðaskrá þar sem segir að eftirlifandi maka hans sé heimilt að sitja í óskiptu búi með fjárráða og ófjáráða börnum hins látna, á maki rétt á því, án þess að samþykki barna þurfi til að koma.
B 2 Forsjá barna hins látna hjá eftirlifandi maka
Ef eftirlifandi maki fer með forsjá eða lögráð ófjárráða stjúpbarna eða niðja sinna á hann rétt á leyfi til setu í óskiptu búi.
B 3 Forsjá barna hins látna hjá öðrum en eftirlifandi maka
Ef eftirlifandi maki fer ekki með forsjá ófjárráða barna hins látna er honum því aðeins heimilt að sitja í óskiptu búi með þeim að forsjárforeldri eða lögráðamaður barnanna samþykki það.
B 4 Börn hins látna sem ekki eru börn eftirlifandi maka
Ef börn eða niðjar sem taka arf eftir hinn látna eru fjárráða er maka heimilt að sitja í óskiptu búi ef þau samþykkja það. Samþykki þarf að koma fram með undirritun þess sem veitir samþykki á beiðni (umsóknareyðublaði hér að neðan) um leyfi til setu í óskiptu búi.
Ef sýslumaður telur að skilyrði séu fyrir leyfi til setu í óskiptu búi gefur hann út sérstakt leyfisbréf til handa eftirlifandi maka
Hvað felur leyfi til setu í óskiptu búi í sér?
Í stuttu máli felur leyfið í sér að eftirlifandi maki ræður einn yfir eignum sínum og hins látna. Hann þarf ekki að fá leyfi eða samþykki annarra erfingja til þess að ráðstafa eignum. Hann má þó ekki rýra eignir hins látna umfram það sem hann þarf til framfærslu.
Hafa ber í huga að sá sem fær leyfi til setu í óskiptu búi tekur sjálfkrafa á sig ábyrgð á öllum skuldum hins látna.
Þinglýsa þarf leyfi til setu í óskiptu búi á fasteignir og skip yfir fimm brúttólestir sem voru að hluta eða öllu leyti þinglyst eign hins látna.
Ekki er greitt stimpilgjald við þinglýsingu búsetuleyfis en greiða ber þinglýsingargjald, sjá hér
Beiðni um leyfi til setu í óskiptu búi (Pdf) og (Word-skjal).
Leiðbeingar um útfyllingu á eyðublaði fyrir beiðni um leyfi til setu í óskiptu búi (af vef dómsmálaráðuneytisins).
Uppfært 26.08.2008


